BioBag er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu og markaðssetningu á lífrænum og niðurbrjótanlegum vörum. BioBag Maíspokarnir sem Terra Einingar býður upp á hafa létt íslendingum flokkun á lífrænum úrgangi og stuðlað að umhverfisvernd í fjölda ára.
BioBag International AS
Hovsveien 8
Askim
Noregur
Ecodepo var stofnað árið 2006 í Írlandi og er í dag í fremstu röð fyrirtækja sem útvega bæði einstaklingum og fyrirtækjum flokkunarkerfi fyrir endurvinnslu. Kerfið samanstendur af litakóðuðum pokum sem eru 100% endurvinnanlegir og pokahöldurum með skýrum merkingum sem tryggja rétta flokkun.
Ecodepo
4 Demesne Road
Seaforde-County Down
Írland
Glasdon er gríðarlega öflugur framleiðandi sorpíláta sem eru nýtt bæði innan og utandyra. Einnig framleiða þeir mikið úrval af útihúsgögnum úr endurunnu plasti og áli. Terra Einingar hefur selt vörur frá Glasdon frá stofnun og hafa þær notið mikillar hylli hérlendis sem víðar.
Glasdon International Ltd
Preston New Rd
Blackpool
England
Micodan var stofnað árið 1965 og hefur verið framarlega í framleiðslu gáma æ síðan. Terra Einingar hefur frá stofnun árið 1985 flutt inn Micodan sorpgáma af öllum gerðum, bæði opna og lokaða í mörgum útfærslum auk pressugáma af ýmsum stærðum. Samstarf okkar við Micodan hefur verið gjöfult og þeirra framleiðsla reynst íslendingum vel í gegnum árin.
Micodan AS
Industrimarken 4
Stövring
Danmörk
PWS er hluti af ESE samstæðunni sem er stærsti plastframleiðandi í heimi. Frá PWS koma langmest seldu sorptunnur landsins, þær sem við þekkjum hvað best frá stórum hluta heimahúsa. Auk þess selur Terra Einingar mikið úrval af alls konar sorp- og flokkunarílátum frá PWS og djúpgámarnir frá Bammens koma til landsins frá PWS.
PWS Nordic AB
Box 47
Perstorp
Svíþjóð
Fyrirtækið Schafy í Slóvakíu framleiðir húseiningar af ýmsum stærðum og gerðum. Þessar húseiningar henta mjög vel þegar það þarf að koma upp aðstöðu til hinna ýmsu starfa með stuttum fyrirvara og út um allt land eru vinnubúðir frá þeim sem Terra Einingar hefur flutt inn. Við kappkostum að eiga þessar einingar tiltækar til afgreiðslu strax, samsettar að ósk kaupanda. Einnig framleiða Schafy nokkrar gerðir af salernishúsum sem hafa reynst vel.
Schafy s.r.o.
Továrenská 3
Malacky
Slóvakía
Kt: 711292-3309
Netfang: einingar@terra.is
Opið virka daga frá 08:00 til 17:00