Í upphafi nýs árs er algengt að setja markmið en eitt af þeim getur verið að bæta flokkun á vinnustaðnum. Hér koma nokkur góð ráð sem fyrirtæki geta nýtt sér:
Bjóða upp á ílát til flokkunar innanhúss á helstu endurvinnsluefnunum: lífrænum úrgangi, plasti, málmum, pappír, pappa og bylgjupappa. Þannig verður til sem minnst af almennum úrgangi.
Passa að flokkunarílátin séu vel merkt og á miðlægum stað sem sýnir að verið sé að flokka sem og á tungumálum allra þeirra sem starfa á vinnustaðnum.
Passa að ílát utandyra sem Terra losar séu í samræmi við flokkun innandyra og séu einnig vel merkt og á öruggum stað ásamt því að vera viss um að allir aðilar sem koma að þeim viti í hvaða ílát viðeigandi flokkar fara.
Vera með sérstök ílát undir spilliefni, raftæki og trúnaðargögn sem falla til á vinnustaðnum. Sem dæmi má nefna rafhlöður, smáraftæki, olíur, ljósperur, sóttmengaðan úrgang og fleira.
Halda regluleg fræðsluerindi, stuðla að samfélagslegri ábyrgð og fara yfir árangurinn með því að deila með starfsmönnum tölum með myndrænum hætti og setja markmið.