Heimajarðgerð - jarðgerðartunna er safntunna þar sem lífrænum úrgangi er safnað til niðurbrots. Jarðgerð er meðhöndlun á lífrænum úrgangi tilvalin fyrir þá sem búa í dreifbýli sem og garðaeigendur í þéttbýli. Jarðgerðartunnan er einangruð sem bæði flýtir fyrir niðurbrotsferlinu og gerir henni kleift að standa úti við íslenskar aðstæður.
Við viljum benda á stoðefni frá Kompostströ sem hjálpar að umbreyta lífrænum úrgangi í næringarríkan rotmassa. Sjá nánar tengdar vörur hér að neðan.
Hægt er að nálgast alla varahluti sem við seljum í tengdar vörur.
Leiðbeininingar um heimajarðgerð
Jarðgerðartunnan sett saman sjá myndband hér.
Sendingarkostnaður er ekki innifalinn í verði*
Athugið: Afhending á sóttum vörum í vefverslun fer fram í Hringhellu 6, 221 Hafnarfirði*
Jarðgerðartunnur eru safntunnur þar sem lífrænum úrgangi er safnað til niðurbrots. Heimajarðgerð er meðhöndlun á lífrænum úrgangi tilvalin fyrir þá sem búa í dreifbýli sem og garðaeigendur í þéttbýli.
Í þessar jarðgerðartunnur er látinn allur lífrænn úrgangur (t.d. ávextir, grænmeti, brauð, eggjaskurn, kjöt, fiskur, tepokar, kaffikorgur) úr eldhúsinu sem og annar lífrænn úrgangur úr garðinum (t.d. visnuð blóm, niðurklipptar trjágreinar, gras o.s.frv.).
Niðurbrot á sér stað allan ársins hring í þessum tunnum, en lofta þarf innihaldið reglulega og nota rétt magn af stoðefnum eins og trjákurl eða pappakurl með.
Með heimajarðgerð er hægt að búa til úrvals moltu (jarðvegsbætir) sem nýtist í garðinn.
Loftunarstafur er notaður til að hræra í heimajarðgerðartunnunni og hleypa þannig súrefni að lífræna úrganginum. Það flýtir fyrir niðurbroti úrgangsins.
Stoðefni vegna jarðgerðar kemur í 50ltr pokum. Með hjálp Kompostströ stoðefnisins er jafnvægi kolefnis, köfnunarefnis og rakainnihald jarðvegsins stjórnað, sem leiðir þannig til bestu aðstæður til að umbreyta lífrænum úrgangi í næringarríkan rotmassa.
Spennusett fyrir 375ltr jarðgerðartunnu. 12 stk seld saman í pakkningu. Spennusettið er varahlutur í jarðgerðartunnu og virka klemmurnar til að halda tunnunni saman. Ef að klemmurnar sem fylgja með tunnunni skemmast þá er hægt að nota settið sem varahlut.
221 Hafnarfirði
Kt: 410283-0349
Netfang: terra@terra.is
Sími: 535-2500
Neyðarnúmer: 660-2800