15. júlí 2026

Aðgengi að sorptunnum
Gott aðgengi að sorptunnum skiptir máli – fyrir öryggi, endingu og betri þjónustuað
Skipulag á sorptunnuskýlum og góð aðkoma að ílátum hefur meiri áhrif en margir gera sér grein fyrir. Með einföldum úrbótum er hægt að auka öryggi starfsfólks, lengja líftíma sorptunna og tryggja skilvirkari losun úrgangs.
Merkingar spara tíma og minnka slit
Þar sem sorptunnur eru geymdar í skýlum er gagnlegt að skýlin séu merkt. Með góðum merkingum geta þeir sem sinna losun verið sneggri að finna rétt ílát, sem sparar tíma og dregur úr óþarfa opnun rangra hurða.
Þetta minnkar jafnframt slit á skýlunum og getur þannig lengt líftíma þeirra og dregið úr viðhaldsþörf.
Gott aðgengi eykur öryggi
Aðgengi að sorptunnum er ekki síður mikilvægt. Sorptunnur geta verið þungar, sérstaklega þegar þær eru fullar, og því skiptir miklu máli að hægt sé að nálgast þær á öruggan og greiðan hátt
Forðast ætti að staðsetja tunnur þannig að starfsfólk þurfi að fara með þær upp eða niður tröppur til að koma þeim að söfnunarbíl. Slíkar aðstæður stytta líftíma sorptunna, eykur hættu á vinnuslysum og geta jafnframt gert losun hægari og erfiðari.
Lítil atriði sem skipta miklu máli
Með skýrum merkingum, góðu aðgengi og öruggri staðsetningu sorptunna stuðlum við að:
Saman getum við skapað öruggara og skilvirkara umhverfi
- auknu öryggi starfsfólks
- skilvirkari losun
- minni sliti á sorptunnum
- betri þjónustu fyrir alla