Rautt neyðarskilti með „SPILLIEFNI“ og hvítu rafhlöðutákni á bláum bakgrunni

Spilliefni & raftæki

Þjónusta í boði

Auk móttöku á spilliefnum og raftækjum sinnir Terra Efnaeyðing margvíslegri annarri þjónustu s.s. söfnunarþjónustu (losun íláta), skjalaeyðingu, söfnun matarolíu, vöruförgun, sölu og/eða leigu sérhæfðra íláta og ráðgjöf um spilliefni.

Táknmynd af bláum vatnsdropa fyrir ofan lítinn bakka eða skál með svörtum neðri súlu

Söfnun á matarolíu

Terra Efnaeyðing sækir matarolíu (steikingarolíu). Olíunni er safnað hjá veitingastöðum, mötuneytum og matvælaframleiðendum sem nota hana til djúpsteikingar.


Olían er send til endurvinnslu og er unnin úr henni lífdísilolía sem notuð er sem
eldsneyti á ýmis tæki.

Tvær bláar spjallblöðrur, önnur með spurningarmerki og hin með hakmerki

Ráðgjöf um spilliefni

Terra Efnaeyðing hefur sérþekkingu á flokkun spilliefna, eiginleikum þeirra og hvaða hætta fylgir hverjum efnaflokki. Einnig á reglum um merkingar, flutninga, söfnun og geymslu. Í tilvikum þar sem reynir á dýpri skilning á efnafræði en gengur og gerist hefur Terra Efnaeyðing yfir slíkri þekkingu að ráða.

Blátt endurvinnslutákn með hringlaga örvum innan í útlínum íláts

Söfnunarþjónusta

Við bjóðum upp á alhliða söfnunarþjónustu spilliefna, útvegum heppileg ílát, hvort

sem um er að ræða spilliefni, raftæki, trúnaðarskjöl, matarolíu, málma eða önnur

Eftir að óskað er eftir þjónustu þá gefur Terra Efnaeyðing sér þrjá virka daga til að bregðast við þeirii beiðni.

Blátt útlínutákn skjals með notandasniðstákni í neðra vinstra horninu

Eyðing trúnaðargagna

Bjóðum upp á ábyrga og umhverfisvæna þjónustu við eyðingu á trúnaðarupplýsingum, hvort sem þær er að finna á pappír, filmum eða hörðum miðlum. Filmur og diskar eru tættir fyrir förgun. Trúnaðarskjöl eru einnig tætt og pappír fer í endurvinnslu.

Við byggjum á yfir 20 ára reynslu og vinnum samkvæmt vottuðum verkferlum undir gæðakerfunum ISO-9001 og EN-15713.

Ef viðskiptavinir óska þess er þeim velkomið að vera viðstaddir eyðingu gagna og þarf þá að panta tíma. Rík áhersla er lögð á fullkomið öryggi og trúnað gagnvart viðskiptavinum.

Blá útlína af dauðum tölvuskjá með X augum og tungu útdregna broskarli

Mótttaka raftækja

Terra Efnaeyðing hefur annast söfnun á raftækjum um langt árabil og bæði sótt og tekið við þeim frá söfnunarstöðvum sveitarfélaga og fyrirtækjum um land allt.

Blátt lauf innan í krulluðum sviga, sem táknar umhverfisvænan kóða eða sjálfbæran hugbúnað

Móttaka rafhlaðna

Við tökum á móti hefðbundnum rafhlöðum og lithium rafhlöðum. Þau má m.a. finna í smáum raftækjum sem hægt er að hlaða líkt og rafrettur.

Drifrafhlöður

Áður en við getum tekið á móti drifrafhlöðum þarf að fylla út eftirfarandi eyðublað vegna skila á ónýtum drifrafhlöðum.

Ýmis færanleg tæki og rafhlöður raðað á hvítum bakgrunni

Vöruúrval


Erum með mikið úrval af vörum sem koma að góðum notum við söfnun á spilliefnum, raftækjum og sóttmenguðum úrgangi. 

Flokkar Raftækja

Efnaeyðing flokkar raftæki í fimm flokka eftir mismunandi meðhöndlun sem þau krefjast. 

Blátt snjallsímatákn með hvítum hleðslusnúru tengdri neðst

Kælitæki

Kælitækin eru send til meðhöndlunar og endurvinnslu í Svíþjóð þar sem málmur og plast eru aðskilin frá einangruninni. Málmur, einangrun og plast fara í endurvinnslu en kælimiðlinum er eytt með brennslu.

Táknmynd fyrir blátt skjá með tölvuskjá og standi á skærbláum bakgrunni

Skjáir

Sjónvarps- og tölvuskjáir eru sendir til endurvinnslu í Svíþjóð.

Táknmynd fyrir bláa ljósaperu á einlitum bláum bakgrunni

Ljósaperur

Ljósaperum er safnað sérstaklega vegna þess að flúorperur, halógenperur og sparperur innihalda spilliefnin flúor og kvikasilfur sem þarf að fanga til að þau komist ekki í jarðveg.

Þessi flokkur er meðhöndlaður þannig að perurnar eru muldar og mengað ryk er aðskilið frá glermulningnum. glermulningurinn fer til eyðingar erlendis.

Táknmynd af bláu þvottavél með kringlóttu hurð og stjórnborði

Stór Raftæki

Hér undir falla þvottavélar, uppþvottavélar, þurrkarar, helluborð, bökunarofnar, eldavélar og örbylgjuofnar.


Þessi tæki eru afhent málmenduvinnslufyrirtækja innanlands sem flytja þau til endurvinnslu erlendis.

Blátt rafhlöðutákn með appelsínugulum lit á skærbláum bakgrunni, að hluta til hlaðinni

Smá Raftæki

Smá raftæki fara í endurvinnslufarveg erlendis þar sem málmar og plast eru aðskilin og fara í frekari endurvinnslu.