Umbótaverkefni í umbúðamálum hafa sparað um 5 tonn af plasti á ári
Við erum meðvituð um að sjálfbærni vegferðin er stöðugt umbótaferli og fylgjast þarf
vel með nýjungum sem til boða standa.
Við hjá Nóa Síríus leggjum áherslu á umhverfið og aðbúnað í starfsemi okkar en leggjum jafnframt áherslu á fræðslu og miðlun upplýsinga til viðskiptavina okkar.
Nói Síríus hefur verið samferða þjóðinni í rúm hundrað ár og vörur okkar órjúfanlegur hluti af mikilvægum tímamótum landsmanna. Fyrir okkur er ábyrg framleiðsla hornsteinn í okkar rekstri og því mikilvægt að við höfum sjálfbærni að leiðarljósi sérhverju sinni.
Í ársbyrjun 2024 settum við okkur afgerandi markmið um sorpflokkun með góðri aðstoð Terra sem leitt hefur til töluverðra umbóta í okkar rekstri en flokkunarhlutfall sorps fór úr 45% í 85% strax á fyrsta ári.

Endurvinnsla Nóa Siríus samsvarar
Plast á mánuði
400 2l flöskum
Pappi á dag
140 pappakössum
Metanorka á mánuði
1500 keyrðum km.
Heildarþyngd úrgangs á mánuði
200 flutningsgámar
Árangur umbótaverkefna
Áhrif úrbótaverkefna tengdum umbúðum geta borið mikinn árangur en með breyttum umbúðum á Síríus línunni sparast um 5 tonn af plasti á ári. Annað slíkt
umbótarverkefni tengist páskaeggjunum okkar. Það hafa margir rekið sig á það að
megnið af sælgætinu innan í Nóa páskaeggjunum er nú umbúðalaust.
Þetta er hluti af þeirri vegferð okkar að minnka umbúðanotkun eins og kostur er. En við létum ekki staðar numið þar heldur fjarlægðum við einnig millispjöld úr rúmlega 18.000 páskaeggjakössum til að spara pappa
Við erum meðvituð um að sjálfbærni vegferðin er stöðugt umbótaferli og fylgjast þarf vel með nýjungum sem til boða standa.
Allar umbúðir merktar með samnorrænum flokkunarleiðbeiningum
Ein þessara nýjunga er samnorrænar flokkunarleiðbeiningar sem aðstoða almenning við að flokka umbúðir í réttar sorptunnur. Þannig má tryggja að umbúðir haldist frekar innan hringrásarhagkerfisins og geti átt sér framhaldslíf.
Snemma árs 2023 ákváðum við, einna fyrst íslenskra framleiðenda, að merkja allar umbúðir okkar með slíkum leiðbeiningum og eru nú allar umbúðir okkar merktar.
