Viðskiptaskilmálar
Upplýsingar um fyrirtækið / söluaðilann
Terra umhverfisþjónusta hf.
Berghella 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 535-2500
Netfang: terra@terra.is
Kt.: 410283-0349 / VSK.nr.: 11194.
Þjónusta og útleiga
Afhending pantaðra íláta
Gámar, tunnur og kör geta tekið allt að 5 virka daga í afgreiðslu, frá því að pöntun berst og þar til ílátið er komið á áfangastað.
Þjónustu- og leiguskilmálar
Verksali sér um allt eðlilegt viðhald á eigin ílátum á leigutíma.
Leigutaki skal tryggja starfsfólki Terra greiðan og öruggan aðgang að íláti til losunar.Leigutaki skal staðsetja ílát þar sem öruggt er að þau trufli hvorki umferð bíla né gangandi vegfarendur. Ílát eiga að vera staðsett þannig að þau geti ekki valdið tjóni vegna bruna eða vinnu við ílát. Þetta á við um staðsetningar eins og gangstéttir, umferðargötur, grasbletti, hellulagðar stéttir og nálægð við mannvirki eins og húsveggi, þakskegg, grindverk eða steypta frístandandi veggi, þar sem ílát geta valdið skemmdum við losun þeirra. Fjarlægð stærri gáma skal vera a.m.k. 2 metrar frá vegg og með 5 metra lofthæð. Ef nauðsynlegt þykir, að beiðni leigutaka, að staðsetja gáma á stað innan framangreindra viðmiðunarmarka þá ber leigutaki fulla ábyrgð á þeirri framkvæmd. Ílát á leigustað er í öllum tilvikum á ábyrgð leigutaka. Æskilegt er að ílát í langtímaleigu séu þrifin eftir þörfum og að notkun þeirra miðist við merkingar á ílátum. Ef verkkaupi óskar eftir að segja upp samningi við Terra umhverfisþjónustu eru ílát fjarlægð og þrifin á kostnað verkkaupa.
Aðstaða, þar með talið festingar og stýringabrautir, fyrir ílát og gáma eru á ábyrgð leigutaka. Terra ber ekki ábyrgð á þeim skemmdum sem verða vegna foks á íláti, nema um gáleysi starfsmanns Terra sé að ræða. Ef ílát glatast eða skemmist hjá leigutaka á leigutíma áskilur Terra sér rétt til að krefjast skaðabóta sem nemur andvirði ílátsins eða viðgerðarkostnaði. Brunatjón skulu tilkynnt við fyrsta tækifæri til Terra umhverfisþjónustu og mun leigutaki ekki bera kostnað af því tjóni nema í formi þess að senda nýtt ílát í skiptum fyrir það sem tjónast.
Verksali getur tekið þá ákvörðun að fjarlægja ekki opinn krókgám sé hann yfirhlaðinn, þ.e. ef farmur fer yfir brún gáms til að forðast óhöpp eða slys.
Ef þörf er á þjónustu utan opnunartíma svo sem á kvöldin og um helgar, áskilur Terra sér rétt til að leggja á aukagjald samkvæmt verðskrá á hverjum tíma eða fyrirfram umsömdu verði.
Flokkun
Gert er ráð fyrir að úrgangurinn verði aðgreindur í flokka eftir því sem leigutaki ákveður á hverjum stað, en gæta verður þess vel að engin spilliefni fari í ílátin. Verksali áskilur sér þann rétt á því að fella úrgangsflokk á kostnað leigtaka ef úrgangur er ekki rétt flokkaður. Einnig fellur á leigutaka kostnaður sem fellur á verksala vegna sekta eða annarra útgjalda leigutaka sem hlýst af því ef úrgangur fellur ekki undir umsaminn úrgangsflokk.
Verklag og skráning
Skráning á þjónustu er framkvæmd í samræmi við verklagsreglur Terra og eru tölulegar upplýsingar aðgengilegar leigutaka í gegnum vefaðgang „mínar síður“ á vef Terra, þar er meðal annars haldið utan um magntölur, úrgangsflokka, dagsetningar og tíma losunar. Einnig er haldin skrá yfir þau ílát sem eru í leigu hjá leigutaka sem og staðsetning þeirra.
Reiknings- og greiðsluskilmálar
Gerður er sérstakur reikningur fyrir hvern verkstað (ef á við) og fylgir honum fylgiblað (færslulisti) þar sem fram kemur einkennisnúmer, gerð og stærð íláts, dagsetning og tímasetning losunar, númer bíls, númer bílstjóra, losunarstaður ásamt samandreginni og sundurliðaðri þyngd og tegund úrgangs frá tilteknum verkstað. Auk þess getur verkkaupi fengið að óskum upplýsingar um þyngd og úrgangstegundir með samanburði við fyrri ár.
Óski viðskiptavinur eftir að komast í reikningsviðskipti mun Terra leggja mat á lánshæfni viðskiptavinarins, áður en til viðskipta kemur. Við mat á lánshæfni nýtir Terra sér meðal annars áhættumatsgreiningu CreditInfo hf. sem byggir á greiðsluhegðun og opinberum skráningum um vanskil, ásamt fleiri atriðum.
Greiðslufrestur í reikningsviðskiptum er 7 dagar, þ.e. eindagi reiknings er 7 dögum eftir útgáfudag. Dragist greiðsla fram yfir eindaga reiknast dráttarvextir frá útgáfudegi til greiðsludags. Dragist greiðsla 5 daga eða meira fram yfir eindaga áskilur Terra sér rétt til að nýta sér aðstoðar innheimtufyrirtækis við innheimtuna og greiðir viðskiptavinurinn allan innheimtukostnað í samræmi við innheimtulög. Þá stöðvast öll þjónusta við viðskiptavin ef greiðsla dregst meira en 35 daga fram yfir eindaga.
Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir leigutaka fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
.........................................