Góður árangur hjá BAUHAUS í flokkun úrgangs
Jóhann Bjarni Pétursson rekstrarstjóri BAUHAUS segir frá reynslu fyrirtækisins.
BAUHAUS er alþjóðleg keðja sem rekur yfir 300 byggingavöruverslanir og 19 vefverslanir í 19 löndum. Verandi hluti af alþjóðlegu fyrirtæki berum við okkur reglulega saman við aðrar verslanir innan fyrirtækisins á þessu sviði og lærum af okkar kollegum víðsvegar um heiminn. Þannig fáum við góðar hugmyndir að lausnum og útfærslum sem hægt er að nýta hér heima.
Seinustu ár höfum við brett upp ermar og tekið okkur mikið á í flokkun innanhús og haft flokkun og sorpmál meira inn í almennri umræðu hjá okkur. Við reynum að halda þessu lifandi í daglegu starfi og erum virk í að benda hvort öðru á þegar sorp fer í röng kör eða gáma. Með þessu höfum við smám saman byggt upp meiri meðvitund innan hópsins og gert flokkun að eðlilegum hlut af daglegu starfi. Í dag er úrgangur frá BAUHAUS flokkaður í 43 aðskilda flokka. Hlutfall blandaðs úrgangs hefur sem dæmi minnkað um 5% milli ára og stendur núna í tæpum 10%

Endurvinnsla BAUHAUS samsvarar
Plast á mánuði
400 2l flöskum
Pappi á dag
140 pappakössum
Metanorka á mánuði
1500 keyrðum km.
Heildarþyngd úrgangs á mánuði
200 flutningsgámar
Flokkun gerð einfaldari
Í dag eru flokkunarstöðvar víðsvegar um verslunina og fjöldi íláta baksvæðis hjá okkur þar sem mismunandi efni eru flokkuð. Markmiðið er að gera flokkun auðveldari og möguleiki sé að flokka rétt í stað þess að sorp falli í almennt sorp.
Móttaka fyrir viðskiptavini
Frá opnun verslunarinnar árið 2012 höfum við einnig boðið viðskiptavinum okkar að koma með rafhlöður og ólíkar tegundir ljósapera í flokkun hjá okkur þeim að kostnaðarlausu. Þannig getum við lagt okkar af mörkum til að tryggja að þessi efni fari í réttan farveg og auðveldað fólki að losa sig við þau á ábyrgan hátt.
Árið 2022 opnuðum við netverslun og frá opnun hennar höfum við lagt áherslu á að nýta það sem þegar fellur til í versluninni. Við nýtum til dæmis kassa og pökkunar-fylliefni sem fellur til í búðinni til að pakka sendingum sem fara út um allt land. Með þessu minnkum við bæði sóun og þörfina á að kaupa nýtt umbúðaefni.
Frekari fjárfesting á árinu
Við stefnum síðan á að fjárfesta í bylgjupappa tætara á þessu ári. Með honum getum við breytt notuðum pappa í pakkningarefni sem hentar vel til að verja vörur í sendingum. Með því vonumst við til að geta minnkað verulega notkun á plasti í innpökkun og nýtt betur það efni sem þegar kemur til okkar og kemur til með að enda sem sorp.
