Skemmtilegur og líflegur vinnustaður
Skemmtilegur og líflegur vinnustaður
Vinnustaðurinn
Það verður að vera gaman
Við leggjum upp úr því að hafa léttleika í fyrirrúmi og skapa jákvæða menningu. Saman sköpum við fjörugt og skemmtilegt félagslíf
Starfsánægja
Sköpum jákvætt og heilbrigt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk er hvatt til að viðhalda gleðinni.
Sveigjanleiki
Við stuðlum að jafnvægi milli vinnu og einkalífs, ásamt því að lagt er upp með gagnkvæman sveigjanleika.
Við hlustum
Stjórnendur og leiðtogar halda starfsfólki sínu vel upplýstu og veita þeim reglulega uppbyggilega endurgjöf um hlutverk, árangur og markmið í starfi.
Vöxtur í starfi
Við viljum að ferðalagið hjá okkur sé gefandi, skemmtilegt og starfsfólk vaxi hjá okkur sem einstaklingar.
Fræðsla og þjálfun
Við viljum valdefla okkar starfsfólk og hvetja það með fræðslu og þjálfun á sama tíma að það taki ábyrgð á eigin þekkingu og hæfni.
Jöfn tækifæri fyrir alla
Hjá okkur erum við öll jöfn. Við tryggjum jöfn tækifæri og kjör til starfsfólks okkar.
Heilsuefling
Við hvetjum fólk til að huga vel að líkamlegu og andlegu heilbrigði. Með því að vera með heilsustyrki og veita aðgengi að mismunandi meðferðaraðilum sé þess þörf.
Meginstarfsemi Terra
Terra leggur ríka áherslu á að auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir; endurnýta, flokka og meðhöndla endurvinnsluefni og annan úrgang með ábyrgum hætti.
Terra hefur einsett sér að aðstoða fyrirtæki og heimili í þessum efnum, hvetja til minni notkunar á umbúðum og einfalda flokkun.
Fyrirtækið hefur starfað við flokkun og söfnun endurvinnsluefna frá árinu 1984 og vinnur með fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum í endurvinnslu og umhverfisvænni úrgangsstjórnun með áherslu á að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið.
Fólkið okkar

Eliana Pestana
Matar-og ræstitæknir
„It's a very pleasant place to work, there's always someone I can ask for help or have a nice chat with. It's always fun during special activities or parties“

Hildur Emilsdóttir
Verkefnastjóri
„Að sækja um hjá Terra er ein af bestu ákvörðunum sem ég hef tekið“

Jónas Þorkelsson
Forstöðumaður verkstæðis
„Mér finnst gaman að vinna hjá Terra vegna þess að það er fjölbreyttur og krefjandi vinnustaður þar sem engin dagur er eins og svo eru líka frábærir samstarfsfélagar.“

Eiríkur Kristinsson
Þjónustustjóri, stjórnstöð
„Ég hlakka til að mæta í vinnuna hvern einasta dag, enda einstaklega skemmtilegt, jákvætt, duglegt og einstaklega hjartahlýtt fólk sem maður vinnur með.“
Terra í tölum
276
Starfsfólk
14
Þjóðerni
13/87
Kyngjahlutfall
5 ár
Meðal starfsaldur

Starfsmannafélag Terra
Hjá Terra er öflugt starfsmannafélag sem sér um að skapa með okkur góða stemningu, við viljum að það sé gaman.
Viðburðir eru fjölbreyttir og skemmtilegir líkt og mannauður Terra er.

Mannauðsstefna
Við tryggjum að Terra umhverfisþjónusta hf. og dótturfélög búi yfir hæfu, áhugasömu og kraftmiklu starfsfólki til að leysa verkefni fyrirtækisins á hverjum tíma.
Stefnan

Jafnréttis- og launastefna
Tilgangur jafnréttis- og jafnlaunastefnu Terra er að stuðla að jafnrétti og jöfn laun kynjanna í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020.
Stefnan

Vinnuverndar- og öryggisstefna
Stefnan tekur til allra sem starfa fyrir Terra og er sett til þess að marka skýra stefnu í vinnuverndar og öryggismálum og sem leiðarljós í daglegum rekstri.
Stefnan

Umhverfisstefna
Stefnan tekur mið af sjálfbærnistefnu félagsins ásamt því að uppfylla kröfur í lögum, reglum og reglugerðum.
Stefnan