Flokkunarhandbók

Þegar kemur að flokkun í fyrirtækjum og stofnunum er mikilvægt að allir starfsmenn þekki leikreglurnar svo að hámarksárangur náist í flokkun. Hér verður farið yfir flokkunarleiðbeiningar fyrir hvern og einn flokk! Athugið að flokkunarhandbókin gerir ráð fyrir að allir flokkar séu flokkaðir sérstaklega, sérsöfnun á hverju efni. Allar aðrar útfærslur þarf að útfæra með viðskiptastjóra.

Markmiðið er að hækka endurvinnsluhlutfall, þ.e að hækka hlutfall efna til endurvinnslu/endurnýtingu og minnka hlutfall efna sem er sendur í brennslu.

Við mælum með eftirfarandi vefsíðum til þess að kynna sér enn frekar upplýsingar um flokkun og hringrásarhagkerfið:



Algengustu flokkar fyrirtækja

Bylgjupappi

Gler og allar glerumbúðir

Glær plastfilma

Lituð plastfilma

Textíll

Matarleifar

Málmumbúðir

Pappír og pappi

Plastumbúðir

Hvað svo?

Allur bylgjupappi, pappír og málmar sem við söfnum fer í endurvinnslu. Pappi, pappír og plast er sent úr landi til endurvinnslu. Málmar fara til endurvinnslufyrirtækja hér á landi.

Við sendum plastfilmuna til Hollands þar sem frekari flokkun fer fram og síðan endurvinnsla aftur í plastefni. Það eru síðan margir flokkar af öðru umbúðaplasti, t.d. plastpokum, smærri plastfilmu, plastbökkum, samsettri plastfilmu (t.d. áleggsbréf), skyrdósum, stórum og litlum plastflöskum og brúsum, sem við tökum saman í einn flokk. Þetta plast er núna sent til Þýskalands og Svíþjóð þar sem það fer í nánari flokkun. Meirihluti af plastinu er endurunnið, en hluti þess er ekki nothæft til endurvinnslu, t.d. vegna óhreininda eða samsetningu umbúða. Það plast sem ekki er hæft til endurvinnslu, fer til orkuvinnslu. Þannig nýtist efnið til að búa til hita í stað annarra orkugjafa.

Úrgangsflokkar

Hér er búið að taka saman helstu upplýsingar um þá flokka endurvinnsluefna og úrgangs sem við sækjum til okkar viðskiptavina, dæmi um efni í hverjum flokk fyrir sig og tillögur að íláti til að safna saman flokkunum. Hér er miðað við flokkun á upprunarstað, þ.e að hver og einn flokkur eigi sér ílát.

Bylgjupappi

Úrgangsflokkar
Bylgjupappi er verðmætt endurvinnsluefni og því er mikilvægt að halda því aðskildu frá blönduðum pappa og pappír ef kostur er á. Bylgjupappinn má vera áprentaður og límbönd eða hefti mega fylgja. Þó er nauðsynlegt að fjarlægja aðra aðskotahluti, t.d. plast eða matarleifar, sem geta rýrt endurvinnslugildi pappans. Bylgjupappi er fluttur til Hollands til endurvinnslu og hann nýist til að búa til nýjar vörur úr pappa. 


Dæmi um bylgjupappa

  • pappakassar
  • pizzakassar

Ílát undir bylgjupappa

Ef um mikið magn af bylgjupappa er að ræða er pressugámur heppilegastur en hann pressar pappann jafn óðum til að búa til meira pláss. Ef um minna magn er að ræða mælum við með framhlaðningsgámum. 


Sjá allar stærðir og gerðir af pressugámum og framhlaðningsgámum

Timbur - hreint

Timbur er eitt af þeim efnum sem mikið fellur til af á byggingarsvæðum. Mikilvægt er að aðgreina í upphafi hvort timbrið sé litað eða ólitað en endurvinnsluferlið er mismunandi eftir því hvort á við. Ólitað timbur er kurlað niður og verður að timburkurli sem selt er til frekari nota til að mynda við gerð göngustíga og víðar. 

Dæmi um hreinan timburúrgang

  • fúgavarið timbur sem er ekki með þekjandi fúgavörn
  • timbur með glæru lakki
  • ómálað timbur úr framkvæmdum
  • timbur sem er ekki plasthúðað
  • mótakrossviður
  • mótatimbur
  • tjörusoðinn krossviður
  • tjörusoðið timbur
  • dokaborð
  • gagnvarinn viður
  • gegnheilt parket
  • húsgögn úr hreinu timbri
  • krossviður
  • límtré
  • mDF
  • masónít
  • pallaefni
  • spónaplötur
  • timburlurkar
  • trétex
  • viðarparket

Ílát undir hreint timbur

Opnir krókgámar henta best þegar safna á saman timbri. Krókgámarnir okkar koma í stærðum 7-30m3. Við eigum einnig mikið úrval af lokuðum krókgámum, það er snyrtilegra á byggingarsvæðum og þá þarf ekki að neta gámana. 

Timbur - litað

Timbur er eitt af þeim efnum sem mikið fellur til af á byggingarsvæðum. Mikilvægt er að aðgreina í upphafi hvort timbrið sé litað eða ólitað en endurvinnsluferlið er mismunandi eftir því hvort á við. Litað timbur er urðað.

Dæmi um úrgang úr lituðu timbri

  • málað timbur
  • timbur með þekjandi viðarvörn
  • parket úr lökkuðu eða lituðu timbri
  • plasthúðað timbur
  • hdf og mdf
  • masónít
  • trétex
  • harmonikkuhurðir
  • innréttingar út lituðu eða lökkuðu timbri án festinga
  • kerfisloft úr lituðu timbri
  • sökkullistar úr lituðu timbri
  • límtré og plasthúðaðir sólbekkir
  • annað litað timbur

Ílát undir litað timbur

Opnir krókgámar henta best þegar safna á saman timbri. Krókgámarnir okkar koma í stærðum 7-30m3. Við eigum einnig mikið úrval af lokuðum krókgámum, það er snyrtilegra á byggingarsvæðum og þá þarf ekki að neta gámana.

Steinefni

Langstærsti hluti byggingarúrgangs er óvirkur úrgangur á borð við steypu, flísar, gler og önnur steinefni. Til að minnka magn í þessum flokki er til dæmis hægt að endurnota meira af honum á verkstað í fyllingar. Mikilvægt er að halda steinefnum flokkuðum frá öðrum úrgangi sem fellur til á byggingarsvæðum. 

Dæmi um steinefnaúrgang

  • gler í glerveggjum
  • flísar með eða án flísalíms
  • speglar
  • salerni
  • vaskar
  • steypuklumpar
  • hellur
  • möl (grús)
  • gluggagler
  • uppgröftur
  • postulín
  • keramik
  • flísar
  • steinar
  • rúður
  • múrsteinar
  • grjót

Ílát undir steinefni

Opnir krókgámar henta best við söfnun á steinefnum. Krókgámarnir undir steinefni koma í stærðum 3-9 m3.

Brotamálmar

Mjög víða er að finna ýmsa málmhluti sem hafa lokið hlutverki sínu og nýtast best sem endurunnin málmur í nýja hluti. Til þess að svo megi verða þarf að koma þeim í endurvinnslu.

Dæmi um úrgang úr brotamálmi

  • álrimlaloft ásamt festingum
  • kerfisveggir úr málmum
  • rimlagluggatjöld úr áli
  • lamir skrár, húnar og annar málmur
  • álleiðarar
  • burðarstoðir úr málmi
  • festingar úr málmi
  • málmfestingar
  • stálhandrið ásamt festingum
  • rafmagnsrennur úr málmi

Ílát undir steinefni

Opnir krókgámar henta best við söfnun á brotamálmum. Krókgámarnir okkar koma í stærðum 7-30m3. Við eigum einnig mikið úrval af lokuðum krókgámum, það er snyrtilegra á byggingarsvæðum og þá þarf ekki að neta gámana.

Rafbúnaður

Raf-úrgangur eins og rafbúnaður og raflagnir

Dæmi um rafúrgang

  • ljósabúnaður
  • rafmagsvírar
  • raftæki 
  • innstungur, rofar og fleira
  • rafhlöður
  • rafgeymar

Ílát undir raf-úrgang

Við mælum með að nota bamba, raftækjatunnu, rafhlöðutunnu eða spilliefnakör.

Spilliefni

Mikilvægt er að koma spilliefnum í réttan farveg og tryggja þannig að þau berist ekki út í umhverfið, enda geta þau verið skaðleg. 

Dæmi um spilliefnaúrgang

  • flúorperur
  • ljósaperur
  • ljósabúnaður, startarar (conductor)
  • olíumálning
  • asbest úr eldri húsum

Asbest og vörur sem innihalda asbest voru notaðar sem eldvarnarefni, hitaeinangrun, hljóðeinangrun og fleira í mörgum byggingum sem voru byggðar fyrir 1980. Asbesti má aldrei blanda saman við aðra úrgangsflokka!

Ílát undir spilliefni

Spilliefnakör henta best við söfnun á úrgangi sem flokkast sem spilliefni. Tvær stærðir af körum eru í boði, 400 ltr og 600 ltr

Textíll

Þegar þarf að henda fatnaði, líni, tuskum og öðru úr textíl er mikilvægt að safna því saman á einn stað og koma því þannig til endurnýtingar eða endurvinnslu. Terra hefur unnið í samstarfi við Rauða Krossinn en þá sinnir Terra söfnun og útvegar viðeigandi ílát og Rauða Krossinn sér um móttöku og að koma efninu í endurvinnslu.

Dæmi um textíl úrgang

  • fatnaður
  • lín
  • lök
  • dúkar
  • tuskur
  • sloppar
  • handklæði

Ílát undir textíl

Hægt er að fá tunnur í stærðum 120ltr - 1100 ltr í nokkrum litum. Einnig er hægt að fá tunnur sem hægt er að læsa. 

Gróft plast annað en umbúðaplast

Umbúðaplast ber úrvinnslugjald og því er annað gjald fyrir annað plast sem fellur til. Þessu plasti er einnig komið til endurvinnslu eftir fremsta megni. 

Dæmi um úrgang úr plasti án úrvinnslugjalds

  • vatns- og frárennslisrör
  • ídráttarbarkar og rör
  • rimlagluggatjöld úr plasti
  • plastfestingar og listar
  • frauðplast
  • plastbakkar
  • plasthjálmar
  • plexi gler
  • rafmagnsrennur úr plasti

Ílát undir plast án úrvinnslugjalds

Opnir krókgámar henta vel þegar mikið magn af plasti er samankomið á einn stað. Krókgámarnir okkar koma í stærðum 7-30m3. Við eigum einnig mikið úrval af lokuðum krókgámum, það er snyrtilegra á byggingarsvæðum og þá þarf ekki að neta gámana. Einnig er hægt að leigja kör ef plastið er ekki í miklu magni. 

Gifs

Úrgangur sem fellur til úr gifsi þarf að halda aðskildum frá öðrum úrgangi. Gifs má ekki urða ásamt lífrænum úrgangi vegna efnasambanda (H2S) sem losna frá því við slíkar aðstæður.

Dæmi um úrgang úr gifsi

  • gifs/gifsplötur
  • gifsloft/ kerfisloft úr gifsi

Ílát undir gifsúrgang

Opnir krókgámar henta best þegar safna á saman gifsi. Krókgámarnir okkar koma í stærðum 7-30m3. Við eigum einnig mikið úrval af lokuðum krókgámum, það er snyrtilegra á byggingarsvæðum og þá þarf ekki að neta gámana.

Blandaður pappi og pappír

Blanda má öðrum pappa en bylgjupappa saman við pappír og safna í sama ílát. Blandaður pappi og pappír er flokkaður á starfstöð Terra og efnið sent út til Hollands til endurvinnslu.

Dæmi um blandaðan pappa og pappír

  • dagblöð
  • tímarit
  • umslög
  • gluggaumslög
  • fernur
  • pappa mál 
  • aðrar umbúðir úr pappa

Ílát undir blandaðan pappa og pappír

Hægt er að fá tunnur í stærðum 120 ltr - 1100 ltr. í nokkrum litum. Einnig er hægt að fá tunnur sem hægt er að læsa.

Matarleifar

Matarleifar skal ávallt haldið aðskildum frá öðrum úrgangi. Þannig er hægt að jarðgera hann og búa til moltu og stuðla þannig að notkun hringrásarhagkerfisins. 

Dæmi um matarleifar

  • afskurður frá ávöxtum og grænmeti
  • eldaðir kjöt- og fiskafgangar
  • kaffikorgur og tepokar
  • eldhúsbréf 

Ílát undir matarleifar

Tunnur henta best til söfnunar á matarleifum. Innihaldið er fljótt að verða þungt og mikilvægt er að tæma það reglulega til að koma í veg fyrir að lykt fari að myndast. 

Skilagjaldskyldar umbúðir

Mikil verðmæti eru fólgin í því að koma drykkjarumbúðum til endurvinnslu. Ál er hægt að endurvinna aftur og aftur án þess að efniseiginleikar þess rýrast og árlegt útflutningsverðmæti nemur um 200 millj.kr. skv. tölum frá Endurvinnslunni.
Terra býður upp á ílát sem henta til söfnunar á skilagjaldskyldum umbúðum sem enda síðan hjá 
Endurvinnslunni hf  sem sér um að koma þeim til endurvinnslu.

Dæmi um skilagjaldskyldar umbúðir

  • glerflöskur fyrir áfengi
  • glerflöskur fyrir bjór
  • glerflöskur fyrir ávaxtasafa
  • glerflöskur fyrir gosdrykki
  • glerflöskur fyrir orkudrykki
  • plastflöskur fyrir ávaxtasafa
  • plastflöskur fyrir gosdrykki
  • plastflöskur fyrir orkudrykki
  • plastflöskur fyrir vatn
  • plastflöskur fyrir áfengi
  • áldósir fyrir gosdrykki
  • áldósir fyrir orkudrykki
  • áldósir fyrir bjór

Ílát undir skilagjaldskyldar umbúðir

Hægt er að fá tunnur í stærðum 120 ltr - 1100 ltr. í nokkrum litum. Einnig er hægt að fá tunnur sem hægt er að læsa.

Jarðvegur - uppgröfur

Jarðvegur er jarðlag eða setlag úr steindum og lífrænum efni og er eitt mest notaða byggingarefnið í heiminum í dag. Fyrir utan það að vera notað gríðarlega mikið til grundunar mannvirkja, er það einnig mikið notað í steypu.

Dæmi um jarðvegsúrgang

  • mold
  • gras
  • þökur
  • torf
  • jarðvegur með lífrænum efnum

Ílát undir jarðvegsúrgang

Opnir krókgámar henta best undir jarðefnaúrgang. Við eigum einnig mikið úrval af lokuðum krókgámum, það er snyrtilegra á byggingarsvæðum og þá þarf ekki að neta gámana. Einnig er hægt að leigja kör ef plastið er ekki í miklu magni.

Jarðvegur - múrbrot - Bolalda

Í Bolöldu er heimilt að losa endurnýtanlegt, óvirkt jarðefni svo sem mold, möl og grjót. Einnig má losa steinsteypubrot sem búið er að klippa af öll útistandandi járn og hreinsa af öðrum efnum svo sem einangrun, pappa og klæðningu. Ekki er heimilt að losa lífrænan úrgang eins og húsdýraskít og landbúnaðarhrat, eins og það er orðað í starfsleyfi.

Dæmi um úrgang sem má fara í Bolöldu

  • Mold
  • Steypuklumpar án útistandandi járns
  • Hellur
  • Möl (grús)
  • Gler (má vera hluti farmsins)
  • Uppgröftur með þökum (aðeins í mjög takmörkuðu magni)


Alls ekki: tré, rótarkerfi eða annar lífrænn úrgangur. 


Þessi samsetning er ekki í boði á öllu landinu

Ílát undir úrgang í Bolöldu

Opnir krókgámar henta best undir jarðefnaúrgang. Við eigum einnig mikið úrval af lokuðum krókgámum, það er snyrtilegra á byggingarsvæðum og þá þarf ekki að neta gámana. Einnig er hægt að leigja kör ef ekki er í mikið magn.

Veiðarfæri

Veiðarfæraúrgangur frá Íslandi er nú fluttur til endurvinnslu í Litháen og Danmörku. Góður árangur hefur náðst með því fyrirkomulagi og framleiðslan fer að stærstum hluta í raf- og bílaiðnað í Þýskalandi, meðal annars til framleiðslu á plastíhlutum í bifreiðar.

Á vef SFS má nálgast nýjustu upplýsingar um móttökustöðvar fyrir úrelt veiðarfæri til endurvinnslu. Ekki er hægt að tryggja að aðrir geti komið veiðarfæraúrgangi til endurvinnslu.

Dæmi um veiðarfæraúrgang

  • Botnvarpa
  • Dragnót
  • Fiskinet
  • Flotvarpa
  • Handfæri
  • Hringnót
  • Lína
  • Ljóstur
  • Þríförkur
  • Öngull

Ílát undir veiðarfæri

Opnir krókgámar henta undir veiðarfæraúrgang. 

Terra umhverfisþjónusta og byggingariðnaðurinn

Við viljum heyra frá þér!

Contact Us