Góður árangur hjá Bónus í flokkun úrgangs
Umhverfisvegferð Bónus hófst má segja strax við stofnun fyrirtækisins árið 1989. Pappi var flokkaður frá öðru sorpi allt frá því að fyrsta Bónusverslunin opnaði í Skútuvogi það ár. Bónus hefur alltaf viljað vera í fararbroddi í þessum málum að sögn Ólafs Thors, markaðsstjóra Bónus.
,,Bónus hefur náð mjög góðum árangri í flokkun úrgangs,” segir Ólafur. ,,Mesti kostnaður í sorphirðu hefur verið í blönduðu sorpi. Þar, eins og annars staðar, hefur Bónus viljað vera fremst í flokki til þess að spara og þar af leiðandi verið rekið á þann hátt að við getum skilað sem mestum pening í vasa viðskiptavina okkar svo hefur Bónus alltaf litið á það sem samfélagslega skyldu að halda í við þróun í þessum málum,” segir hann.

Endurvinnsla Bónus samsvarar
Plast á mánuði
400 2l flöskum
Pappi á dag
140 pappakössum
Metanorka á mánuði
1500 keyrðum km.
Heildarþyngd úrgangs á mánuði
200 flutningsgámar
Umhverfisvitund rík í DNA Bónus
Að sögn Ólafs hefur gengið vel að fá nýtt starfsfólk til að tileinka sér þá umhverfisvitund sem ríkir innan Bónus. ,,Þetta er ríkt í DNA Bónus og auðvelt að kenna nýju fólki þegar allir í fyrirtækinu eru á sömu blaðsíðu í þessum efnum,” segir hann.
Hlutverk verslunarstjóra
Aðspurður hvort Bónus bjóði reglulega upp á innanhúsfræðslu um mikilvægi flokkunar og þá úrgangsflokka sem fyrirtækið vinnur með segir hann að það megi alltaf gera betur hvað þetta varðar.
,,Stjórnendur hafa komið i heimsókn til Terra og það hefur verið gert átak í þessum máli í gegnum tíðina en það er ekkert fast í þessum efnum,” segir Ólafur og útskýrir að verslunarstjórar beri ábyrgð á þessum málum í sinni verslun eins og öllu öðru innan þeirrar verslunar.
Aðspurður hvort Bónus hafi tekið upp tímabundna flokkun tengda árstíðum segir Ólafur að fyrirtækið hafi tekið frauðkassa til hliðar í samstarfi við Terra. ,,Tvisvar á ári koma vínber í frauðkössum frá Bandaríkjunum. Þetta er þó ekki í gangi í dag því þetta gekk brösulega,” segir hann.
Það er ýmislegt í gangi í umhverfismálum í Bónus að sögn Ólafs. ,,Við erum í vegferð að skipta um kælimiðil (fara úr freoni) búð fyrir búð. Það er langtímaverkefni hjá okkur. Við erum alltaf í vegferð í því að leita eftir orkusparandi lausnum. Í því samhengi má nefna LED lýsingu og orksparandi kælingu.
Rýrnun í lágmarki
DNA Bónus er að halda rýrnun í algjöru lágmarki. Það er gert með margvíslegum hætti og erum, að okkur vitandi, á heimsmælikvarða þar,” segir hann.
