24. ágúst 2026

Bylgjupappi verður að nýju hráefni

Bylgjupappi – frá kassa í nýtt hráefni 📦♻️ 

Bylgjupappi er kannski ekki flóknasti úrgangurinn sem við sjáum á hverjum degi… en hann er einn sá verðmætasti 👀 Við sendum bylgjupappa frá Terra til Þýskalands beint í endurvinnsluferli hjá verksmiðju sem einnig framleiðir nýjar pappavörur. Meiri hluti vara sem þau selja eru gerð úr 100% endurunnum pappa. 

Vissir þú að pappírstrefjarnar í bylgjupappa er hægt að endurvinna um 5–7 sinnum? Í hvert skipti styttast trefjarnar og veikjast, þannig að stundum þarf blöndu nýjum og endurunnum trefjum við til að framleiða sterkan nýjan pappa. 

Úr endurunnum bylgjupappa verða meðal annars: 📦 Nýir kassar og umbúðir 🧻 Iðnaðarpappír og fylliefni 🔥 Að lokum getur efnið farið í orkuframleiðslu þegar trefjarnar eru orðnar of stuttar 

Það sem við gerum skiptir meira máli en margir halda: 

  • Blautur,skítugur eða myglaður pappi = verri gæði
  • Vel pressað og þurrt efni = hagkvæmari flutningur og verðmætari afurð

Því betur sem við flokkum og meðhöndlum bylgjupappann, því meiri líkur eru á að hann fái 

nýtt líf aftur og aftur ♻️