10. september 2026

Fjögur nýsköpunarverkefni hljóta fyrstu sjálfbærnistyrki Terra

Terra veitti á dögunum í fyrsta skipti sjálfbærnistyrki þar sem áhersla var á umhverfis- og hringrásarlausnir. Alls bárust um 70 umsóknir sem endurspegla þann mikla kraft og nýsköpun sem er til staðar hér á landi.

Eftir yfirferð og mat umsókn voru sex verkefni valin til að kynna hugmyndir sínar fyrir valnefnd. Að lokum hlutu fjögur verkefni styrk árið 2026:  IceSand, GróBox, Loopable og Odasia. 

IceSand vinnur að endurnýtingu glers með því að umbreyta því í sand sem meðal annars má nýta í glompur á íslenskum golfvöllum.

GróBox þróar lífbrjótanlegar umbúðir úr sveppamassa sem ætlað er að koma í staðinn fyrir frauðplasts m.a. í íslenskum sjávarútvegi. Frauðplast er framleitt úr jarðefnaeldsneyti á meðan umbúðir Gróbox eru gerðar úr lífrænu og umhverfisvænu hráefni.

Loopable vinnur að endurvinnslu textíls með það að markmiði að vinna úr honum nýtt garn sem nýta má til áframhaldandi framleiðslu og halda þannig textílnum lengur í hringrásarhagkerfinu. 

Odasia þróar hljóðvistarlausnir úr endurunnum textíl og gefur þannig textílúrgangi nýtt og verðmætt hlutverk

Markmið Terra með styrkjunum er að styðja við verkefni sem stuðla að aukinni hringrásarhagkerfi, draga úr sóun og skapa sjálfbærari framtíð með nýsköpun og framsýnum lausnum.

Við hlökkum til að fylgjast með þessum metnaðarfullu verkefnum vaxa og dafna á komandi misserum. Sem hluti af styrkveitingunni munu styrkþegarnir kynna framgang verkefna sinna á stjórnendadegi Terra sem fram fer í haust.

Að lokum viljum við þakka öllum þeim sem sendu inn umsókn. Fjöldi og gæði verkefnanna sýndu glöggt hversu öflug nýsköpun á sér stað á sviði umhverfis- og sjálfbærnimála hér á landi. Við óskum öllum umsækjendum innilega til hamingju með metnaðarfull verkefni og hlökkum til að fylgjast með þeim þróast áfram.

Gróa Björg Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar afhenti styrkinn ásamt

Ernu Björk Häsler markaðsstjóra Terra