7. október 2026

Flokkum betur
Hvað á að flokka sem blandaður úrgangur?
Við erum orðin ansi vön því að flokka plast, pappa, pappír og matarleifar – en hvað á að fara í blandaða úrganginn?
Það á í rauninni sem minnst að fara í flokkinn blandaður úrgangur. Í þann flokk ætti bara að fara úrgangur sem ekki er hægt að flokka í annan viðeigandi úrgangsflokk og er því ekki endurvinnsluefni. Því betur sem við flokkum, því minna fer í blandaða úrgangsflokkinn.
Hvað má flokka sem blandaðan úrgang?
Í blandaðan úrgang fara meðal annars hlutir sem ekki eiga sér annan endurvinnslu- eða flokkunarfarveg í almennu heimilishaldi. Þar má nefna:
- Ryksugupoka og innihald þeirra
- Bleyjur og aðrar hreinlætisvörur
- Blautþurrkur
- Kattasand og sambærilegan úrgang
- Mjög óhreinar umbúðir sem ekki er hægt að tæma eða hreinsa
- Smáhluti úr blönduðum efnum sem ekki er hægt að aðskilja eða flokka með öðrum hætti
Hvað á ekki að fara í blandaðan úrgang?
Ýmis úrgangur ratar í flokkinn blandaður úrgangur sem væri hægt að flokka betur og koma þeim auðlindum aftur út í hringrásarhagkerfið. Þar á meðal eru pappír og pappi, plastumbúðir, matarleifar og aðrir flokkar sem hægt er að halda aðskildum.
Svo eru hlutir sem sérstaklega mikilvægt er að flokka aldrei sem blandaðan úrgang.
- Rafhlöður geta valdið eldhættu þegar þær skemmast eða kremjast við söfnun og meðhöndlun úrgangs
- Raftæki
- Spilliefni á borð við málningu, leysiefni og ýmis sterk hreinsiefni. Slík efni þarf að fara með í næstu móttökustöð.
- Einnota og fjölnota rafrettur
Minna í blandað = betri nýting
Þess vegna er blandaði úrgangurinn í raun ágætis mælikvarði á flokkunina okkar 👉🏽 Því minna sem fer þangað, því betur erum við að flokka.
Hvað með fyrirtæki?
Sama hugsun á við á vinnustöðum. Þegar mikið magn fer í blandaðan úrgang getur verið gagnlegt að skoða hvað leynist í honum.
Er þar mikið af pappa, plasti, matarleifum eða öðrum efnum sem hægt væri að flokka sérstaklega?
Stundum geta tiltölulega litlar breytingar á flokkun, staðsetningu íláta eða merkingum skilað miklum árangri. Betri flokkun getur bæði aukið nýtingu hráefna og gert úrgangsstjórnun fyrirtækja skilvirkari. Þess má einnig geta að kg verð fyrir blandaðan úrgang er lang dýrasti flokkurinn. Það er því ekki bara gott fyrir umhverfið heldur einnig fyrir reksturinn þegar starfsfólk stendur sig vel í að flokka.
Hollráð frá Terra
Kíktu í ílátið fyrir blandaðan úrgang. Það getur sagt þér ótrúlega mikið um hvort það sé tækifæri til bætingar hvað varðar flokkun
Ertu í vafa um hvernig á að flokka eða viltu bæta flokkunina á þínum vinnustað?
Sérfræðingar Terra geta aðstoðað við að finna lausnir sem henta starfseminni.
Vantar aðstoð?
Þjónustuver Terra er til staðar til að aðstoða við innskráningu og notkun.
- Netspjall: Neðst í hægra horni á terra.is (opið virka daga kl. 8:00–16:00)
- Sími: 535 2500 (opinn virka daga kl. 9:00–15:00)