12. desember 2023
Frá og með áramótum mega fyrirtæki á Suðurlandi ekki nota sterkjupoka/maíspoka undir matarleifar.
Við viljum minna viðskiptavini okkar á að frá og með áramótum mega fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Reykjanesi og Suðurlandi ekki nota sterkjupoka/maíspoka undir matarleifar.
Sorpa mun ekki taka á móti matarleifum nema þær séu í bréfpokum sem brotna betur niður og festast ekki í vélbúnaði GAJA, sem er gas- og jarðgerðarstöð í rekstri Sorpu.
Á vef okkar, terra.is má sjá þær lausnir sem við erum að bjóða upp á þessa stundina.
Saman náum við árangri!
