9. nóvember 2022
Fyrirmyndafyrirtæki í rekstri
Keldan í samstarfi við Viðskiptablaðið tekur saman lista á hverju rekstararári yfir þau fyrirtæki sem teljast til fyrirmyndar í rekstri.
Hvað þarf til að teljast til fyrirmyndar?
- Rekstrarárin 2021 og 2020 liggja til grundvallar en tekið er tillit til rekstrarársins 2019.
- Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
- Tekjur þurfa að hafa verið umfram 40 milljónir króna.
- Eignir þurfa að hafa verið umfram 80 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.
- Aðrir þættir metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Til dæmis skil á ársreikningi og rekstrarform.
