29. mars 2023
Fyrirtæki mega áfram nota BioBag
Fyrirtæki mega áfram nota BioBag
Ólíkt heimilum á höfuðborgarsvæðinu þá þurfa fyrirtæki ekki að skipta yfir í bréfpokana. Þau mega áfram nota BioBag pokana undir lífrænan úrgang. Pokar þessi eru lífrænir maíspokar sem eyðast við jarðgerð á nokkrum vikum.
Terra umhverfisþjónusta verslar pokana af BioBag sem er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu og markaðssetningu á lífrænum og niðurbrjótanlegum vörum. Maíspokarnir frá þeim sem Terra umhverfisþjónusta býður upp á auðveldar flokkun fyrirtækja á matarleifum og stuðla að umhverfisvernd.
