21. desember 2023
Orkan og Terra
Þriðja árið í röð býður Orkan viðskiptavinum sínum að koma á valdar stöðvar sínar og tæma plast og pappa í umbúðagáma í samstarfi við okkur hjá Terra .
Í ár verða umbúðagámarnir staðsettir við fimm Orkustöðvar og þar verður hægt að losa pappa og jólapappír í einn gám og plast í annan gám.
Umbúðagámarnir verða opnir dagana 25.- 29. desember frá kl.08:00 -23:00
Umbúðagámarnir verða staðsettir á:
- Austurströnd, Seltjarnarnesi
- Gylfaflöt, Reykjavík
- Kleppsvegi, Reykjavík
- Reykjavíkurvegi, Hafnarfirði
- Skagabraut, Akranesi
Hvetjum við ykkur til að flokka vel og vandlega til að þetta skili sér sem hreinir straumar aftur út í hringrásarhagkerfið.
Það sem má fara í pappagámin:
Allur gjafapappír og bylgjupappír
EKKI járn (stundum er járn í umbúðum)
Það sem má fara í plast:
Allt umbúðaplast
Frauðplast í litlu magni
Ekki járn (stundum er járn í umbúðum)
👉 Við viljum ítreka að pakkaböndin eru flokkuð sem blandaður úrgangur og eiga því ekki að fara í þá gáma sem Orkan er með hjá sér.
Endilega nýtið ykkur þessa frábæru þjónusta Orkunnar
Renndu við og nýttu orkuna til að flokka.
