6. júní 2024
Terra skrifar undir samning við Garðabæ og Mosfellsbæ
Terra var rétt í þessu að undirrita samning við Garðabæ og Mosfellsbæ varðandi úrgangshirðu úr djúpgámum næstu tvö árin.
Garðabær: Samningur um hirðu úr djúpgámum fyrir fjórar gerðir úrgangs; plast, pappír/pappa, blandaðan úrgang og matarleifar.
Mosfellsbær: Samningur um hirðu úr djúpgámum fyrir fjórar gerðir úrgangs; plast, pappír/pappa, blandaðan úrgang og matarleifar.
Við hjá Terra höfum mikla reynslu þegar kemur að djúpgámum enda höfum við selt yfir 600 slíka gáma.
Efri mynd: Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar og Valgeir Baldursson, forstjóri Terra
Neðri mynd: Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Valgeir Baldursson, forstjóri Terra
