30. desember 2022
Verðbreytingar taka gildi 1.janúar 2023 á Norðurlandi
Verðbreytingar munu eiga sér stað um áramót og taka þær gildi frá og með 1. janúar 2023. Helstu verðbreytingar eru þær að leiga á ílátum mun hækka um 5,1%, kostnaður vegna losana mun hækka sömuleiðis um 5,1% og eyðingargjöld munu breytast í takt við breytingar á afsetningarkostnaði félagsins. Helstu breytingar á eyðingargjöldum eru samkvæmt neðangreindu:
- Almennur blandaður úrgangur verður í 27,5 kr./kg. án vsk.
- Óflokkaður grófur úrgangur verður 42,0 kr./kg. án vsk.
- Matarleifar (lífrænn heimilisúrgangur) verður 29,0 kr./kg. án vsk.
- Hætt verður að greiða fyrir bylgjupappa
