BAUHAUS er alþjóðleg keðja sem rekur yfir 300 byggingavöruverslanir og 19 vefverslanir í 19 löndum. Verandi hluti af alþjóðlegu fyrirtæki berum við okkur reglulega saman við aðrar verslanir innan fyrirtækisins á þessu sviði og lærum af okkar kollegum víðsvegar um heiminn. Þannig fáum við góðar hugmyndir að lausnum og útfærslum sem hægt er að nýta hér heima.
Seinustu ár höfum við brett upp ermar og tekið okkur mikið á í flokkun innanhús og haft flokkun og sorpmál meira inn í almennri umræðu hjá okkur. Við reynum að halda þessu lifandi í daglegu starfi og erum virk í að benda hvort öðru á þegar sorp fer í röng kör eða gáma. Með þessu höfum við smám saman byggt upp meiri meðvitund innan hópsins og gert flokkun að eðlilegum hlut af daglegu starfi. Í dag er úrgangur frá BAUHAUS flokkaður í 43 aðskilda flokka. Hlutfall blandaðs úrgangs hefur sem dæmi minnkað um 5% milli ára og stendur núna í tæpum 10%l

