Þökkum frábær viðbrögð við nýjum styrktarsjóð Terra. Yfir 60 umsóknir bárust fyrir árið 2026 og hefur nú verið lokað fyrir umsóknir þetta árið.
Við leitum að aðila, frumkvöðlum eða sprotafyrirtækjum sem eru með hugmynd eða verkefni sem styðja við:

Umhverfismál - Betri umgengni við jörðina
Verkefni sem stuðla að hringrásarhugsun, draga úr umhverfisáhrifum eða bæta úrgangsstjórnun.

Nýsköpun - Sköpum nýjar leiðir að hringrásarhugsun
Frumlegar lausnir sem bæta nýtingu auðlinda, efnisstrauma eða stuðla að sjálfbærari samfélögum.

Sjálfbærnistefnu Terra - Stuðlum að sjálfbærni
Verkefni sem styðja við sjálfbærnistefnu Terra og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem félagið leggur áherslu á, sjá nánar í sjálfbærnistefnu Terra.
Lesa Sjálfbærnistefnu

Hafa jákvæð áhrif á samfélagið í heild eða í nærumhverfi Terra
Við störfum um allt land og viljum styðja við verkefni í okkar nærsamfélagi ef verkefnið snýr ekki að áhrifum á samfélagið í heild.