28. október 2026

Verðbreytingar

Tilkynning um breytingu á verðskrá Terra

Frá og með 1. nóvember 2026 tekur gildi 2,96% hækkun á verðskrá Terra fyrir úrgangsflokkana mat­arleifar, timbur og steinefni.

Breytingin kemur til vegna hækkunar á gjaldskrá móttökustöðvar SORPU, sem hefur bein áhrif á kostnað við móttöku og meðhöndlun þessara úrgangsflokka.

Terra leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum hagkvæma og áreiðanlega þjónustu og halda verðbreytingum í lágmarki eftir því sem kostur er. Breytingar á gjaldskrám móttökuaðila geta þó kallað á samsvarandi aðlögun á verðskrá okkar.

Við þökkum viðskiptavinum okkar fyrir skilninginn og áframhaldandi traust.


Minna í blandað = betri nýting