29. júní 2026

Ný móttökustöð Terra
Nú geta fyrirtæki losað úrganginn hjá Terra í Berghellu
Terra hefur opnað nýja móttökustöð fyrir fyrirtæki að Berghellu 1 í Hafnarfirði
Terra hefur opnað nýja móttökustöð fyrir fyrirtæki að Berghellu 1 í Hafnarfirði og þar geta fyrirtæki nú komið sjálf með úrganginn sinn til flokkunar og losunar á einfaldan og þægilegan hátt.
Á stöðinni verður tekið á móti fjölbreyttum úrgangsflokkum. Þeir flokkar sem verður tekið á móti eru eftirfarandi:
- Bylgjupappír
- Pappír/Pappi
- Plastumbúðir
- Heyrúlluplast
- Frauðplast
- Hreint timbur
- Litað timbur
- Málmur
- Hjólbarðar
- Flísar – postulín – gler
- Blandaður rekstrarúrgangur
- Grófur úrgangur
Fyrirtæki keyra einfaldlega inn á svæðið, fara á vigtina við komu og aftur við brottför og greiða samkvæmt kílóum sem skilað er inn. Þjónustan er opin bæði fyrirtækjum í reikningsviðskiptum við Terra og þeim sem vilja greiða á staðnum.
Ef einhver vafi leikur á flokkuninni er starfsmaður á svæðinu tilbúinn að leiðbeina og hjálpa til þannig að úrgangurinn fari á réttan stað.
Með nýju móttökustöðinni er Terra að stíga enn eitt skrefið í að bæta þjónustu við fyrirtæki.
Opnunartími er er frá 8:00 til 16:30.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Berghellu!
