Gróa Björg Baldvinsdóttir
Framkvæmdarstjóri sjálfbærni og menningar
Gróa Björg Baldvinsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar frá 2022. Auk þess er Gróa stjórnarmaður í dótturfélaginu Terra Einingar ehf. og Öryggisgirðingar ehf., sem er dótturfélag Terra Eininga.
Gróa er með BA- og ML-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík, 2006-2011 og málflutningsréttindi fyrir hérðasdómi 2012 auk þess hefur hún lokið PMD-námi frá Háskólanum í Reykjavík, 2019-2020 og markþjálfunarnám 2021.
Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri stjórnarhátta og gæðamála hjá Skeljungi en áður var hún yfirlögfræðingur félagsins, regluvörður og ritari stjórnar, 2017-2021. Þar áður starfaði hún sem lögmaður hjá Landslögum 2011-2017. Auk þess hefur hún sinnt kennslu um stjórnarhætti fyrirtækja við Háskólann á Bifröst og sat í Viðurlaganefnd Nasdaq Iceland (Kauphöllin), ásamt setu í ýmsum öðrum nefndum og stjórnum.
