Ólöf Pétursdóttir
Stjórnarformaður
Ólöf Pétursdóttir, stjórnarformaður, er fædd árið 1981. Hún var fyrst kosin í stjórn Terra árið 2023. Ólöf hefur lokið M.Sc. prófi frá Háskólanum í Reykjavík í fjárfestingastjórnun. Hún starfar í dag hjá Stefni í teymi sérhæfðra hlutabréfa og situr í stjórn Íveru. Áður starfaði hún í eignastýringarteymi Lífeyrissjóðs verslunarmanna og
þar áður í fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance.
