Valgeir Baldursson

Forstjóri

Valgeir Baldursson, hefur verið forstjóri félagsins frá maí 2021. Auk þess er Valgeir stjórnarformaður Öryggisgirðinga ehf og er einnig starfandi framkvæmdastjóri sviðs akstursþjónustu.


Hann lauk MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007, hafði áður lokið viðskipta- og stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1993 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund árið 1990.


Valgeir starfaði áður sem framkvæmdastjóri fjárfestinga og reksturs hjá VÍS 2017-2021. Þar áður starfaði hann hjá Skeljungi í átta ár. Frá 2014-2017 sem forstjóri Skeljungs, 2011-2014 sem framkvæmdastjóri neytendasviðs og 2009-2011 sem fjármálastjóri. Hann hefur setið í ýmsum stjórnum á vegum Skeljungs 2009-2017, SPRON 2006-2009 og annarra fyrirtækja.