5. ágúst 2026

Terra og Hveragerði
Terra sér um alla úrgangsþjónustu fyrir Hveragerðisbæ
Það er okkur hjá Terra mikil ánægja að tilkynna að fyrirtækið hefur verið valið til að annast alla úrgangsþjónustu fyrir Hveragerðisbæ í kjölfar útboðs. Skrifað var undir samning þann 22. júlí af Ingimari Guðmundssyni, bæjarstjóra Hveragerðisbæjar, og Gísla Þór Arnarssyni, framkvæmdastjóra Terra.
Samningurinn tekur gildi 1. ágúst 2026 og gildir til þriggja ára, með möguleika á framlengingu um tvö ár til viðbótar.
Samkvæmt samningnum mun Terra annast söfnun úrgangs frá heimilum og stofnunum sveitarfélagsins í fjórum úrgangsflokkum, auk frákeyrslu úrgangs frá gámaplani Hveragerðisbæjar. Með þessu tekur Terra að sér alla úrgangsþjónustu fyrir bæði íbúa og stofnanir bæjarins.
Terra hefur áður sinnt sorphirðu í Hveragerði og býr því yfir góðri reynslu og þekkingu á svæðinu. Sú reynsla skapar traustan grunn fyrir örugga, skilvirka og áreiðanlega þjónustu frá fyrsta degi.
Litlar breytingar fyrir íbúa
Fyrir íbúa verða breytingarnar í lágmarki. Ekki verður skipt um sorpílát né gerðar aðrar sýnilegar breytingar á þjónustunni.
Helsta breytingin er að fyrsta losun blandaðs úrgangs og matarleifa færist fram um eina viku. Í stað þess að fara fram 17.–18. ágúst verður losað á tímabilinu 10.–14. ágúst. Samhliða því tekur nýtt sorphirðudagatal gildi.
Traust sem skiptir máli
Við erum afar stolt af því trausti sem Hveragerðisbær sýnir Terra með þessum samningi og hlökkum til að hefja samstarfið á ný. Markmið okkar verður áfram að veita framúrskarandi þjónustu, tryggja skilvirka úrgangsþjónustu og styðja við metnaðarfulla og umhverfisvæna úrgangsstjórnun til hagsbóta fyrir íbúa og sveitarfélagið.
Við viljum jafnframt þakka öllum þeim starfsmönnum Terra sem komu að undirbúningi útboðsins og gerð samningsins. Slíkur árangur næst aðeins með góðu samstarfi, fagmennsku og samstilltu átaki. Þessi samningur er enn eitt dæmið um þann metnað sem einkennir starfsfólk Terra og við hlökkum til að hefja þjónustuna í Hveragerði.