Umhverfis- og nýsköpunar styrktarsjóður

Ert þú með hugmynd af verkefni sem getur haft jákvæð áhrif á umhverfið og samfélagið?

Við hjá Terra viljum styðja við aðila sem vinna að lausnum sem stuðla að sjálfbærni og betri framtíð fyrir okkur öll. Nú opnum við fyrir umsóknir um styrki til aðila – en aðeins þau verkefni sem falla að styrktarstefnu sem snýr að umhverfismálum og nýsköpun Terra koma til greina.

Skilyrði fyrir umsókn

Þökkum frábær viðbrögð við nýjum styrktarsjóð Terra. Yfir 60 umsóknir bárust fyrir árið 2026 og hefur nú verið lokað fyrir umsóknir þetta árið.

Við leitum að aðila, frumkvöðlum eða sprotafyrirtækjum sem eru með hugmynd eða verkefni sem styðja við:

Umhverfismál - Betri umgengni við jörðina

Verkefni sem stuðla að hringrásarhugsun, draga úr umhverfisáhrifum eða bæta úrgangsstjórnun.

Nýsköpun - Sköpum nýjar leiðir að hringrásarhugsun

Frumlegar lausnir sem bæta nýtingu auðlinda, efnisstrauma eða stuðla að sjálfbærari samfélögum.

Sjálfbærnistefnu Terra - Stuðlum að sjálfbærni

Verkefni sem styðja við sjálfbærnistefnu Terra og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem félagið leggur áherslu á, sjá nánar í sjálfbærnistefnu Terra.

Hafa jákvæð áhrif á samfélagið í heild eða í nærumhverfi Terra

Við störfum um allt land og viljum styðja við verkefni í okkar nærsamfélagi ef verkefnið snýr ekki að áhrifum á samfélagið í heild.