Við hjá Nóa Síríus leggjum áherslu á umhverfið og aðbúnað í starfsemi okkar en leggjum jafnframt áherslu á fræðslu og miðlun upplýsinga til viðskiptavina okkar. Nói Síríus hefur verið samferða þjóðinni í rúm hundrað ár og vörur okkar órjúfanlegur hluti af mikilvægum tímamótum landsmanna.
Fyrir okkur er ábyrg framleiðsla hornsteinn í okkar rekstri og því mikilvægt að við höfum sjálfbærni að leiðarljósi sérhverju sinni. Í ársbyrjun 2024 settum við okkur afgerandi markmið um sorpflokkun með góðri aðstoð Terra sem leitt hefur til töluverðra umbóta í okkar rekstri en flokkunarhlutfall sorps fór úr 45% í 85% strax á fyrsta ári.


