Á gámavelli í Bíldudal er svokall­aður flokk­un­ar­gámur, þ.e. hús með hólfum fyrir þurrt flokkað endur­vinnslu­efni, sem er aðgengileg allan sólar­hringinn. Endur­vinnslu­efni sem hér um ræðir eru: bylgjupappi og sléttur pappi, blöð, tímarit og skrif­stofupappír, fernur, plast (hart og lint), málmar, rafhlöður og kerta­af­gangar.

Á hverju heimili er ein 240L tunna fyrir óflokk­aðan heim­il­isúr­gang.

465, 466
Almennt sorp
Grá tunna

Í almennu tunnuna sem getur verið grá eða svört fer sá úrgangur sem ekki er endurvinnanlegur.

  • Salernisúrgangur
  • Úrgangur frá gæludýrahaldi
  • Bleyjur
  • Gúmmíhanskar
  • Umbúðir sem ekki er hægt að hreinsa
  • Tyggjó