Hætta getur skapast í kringum stór ökutæki þar sem það eru blindir staðir sem ökumaður sér ekki í kringum bílinn þegar hann situr undir stýri.

Þegar gengið eða hjólað er í kringum stór ökutæki (t.d. vörubíla, sorphirðubíla og strætisvagna) ber að varast blindu staðina sérstaklega beint fyrir framan bílinn og til hliðar við bílinn. Farið því varlega þegar þið þurfið að nálgast stóra bíla, haldið góðri öryggisfjarlægð og forðist að fara í blindustaðina eins og kostur er.

Aðrir ökumenn ættu að forðast að fara í blindu staðina/hornin (þar sem ökumaður sér þig ekki), og passa að stór ökutæki geti ekki séð þig þegar þeir eru að beygja eða færa sig til, svo tryggja þarf að ökumaður hafi séð þig áður en þú hreyfir þig eða framkvæmir ákveðnar aðgerðir.

Þessi ökutæki þurfa lengri hemlunar vegalengd og víðtækara snúnigsrými en venjulegur fólksbíll.

Mikilvægustu atriðin:

  • Blind horn: Stór ökutæki hafa stór blind horn beint fyrir framan, aftan og til hliðar. Ef þú ert í blindu horni sér ökumaðurinn þig ekki. Farðu því aldrei þangað.
  • Sýnileiki: Alltaf að vera viss um að ökumaðurinn hafi séð þig áður en þú ferð fram úr honum, beygir inn fyrir hann eða tekur ákvörðun sem gæti haft áhrif á akstur hans.
  • Hemlun: Það tekur stór ökutæki mun lengri tíma að hemla.
  • Afturhlerar: Vertu meðvitaður um að við opnun á afturhlerum eða vöruhurðum á stórum bílum getur það verið hættulegt vegna þess hve þungir þeir eru.
  • Gangbrautir: Vertu sérstaklega varkár á gangbrautum, vertu viss um að ökumaður hafi séð þig og ökutæki numið staðar áður en þú gengur yfir götuna á gangbrautinni.

Með því að skilja takmarkanir stórra ökutækja og vera meðvitaður um blindu hornin minnka líkur á slysum.