Eldur kom upp á útisvæði Terra í Berghellu síðdegis í dag, þann 18. maí. Tilkynning um eld barst kl. 15:15 og var starfsfólk Terra fljótt á vettvang. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins mætti kl. 15:32 og tókst að slökkva eldinn án frekari atvika.
 
Talið er að eldurinn hafi kviknað vegna lithium rafhlöðu sem lenti með óflokkuðum úrgangi, en slíkar rafhlöður geta verið sérstaklega hættulegar þegar þær eru ekki meðhöndlaðar á réttan hátt. Atvikið undirstrikar enn á ný mikilvægi þess að rafhlöður séu flokkaðar sérstaklega og aldrei settar með blönduðum úrgangi.
 
Terra þakkar slökkviliðinu fyrir skjót og fagleg viðbrögð.