Hluti af Fróða flokkara er mættur á svæðið í þessum gám. Fleiri gámar eru væntanlegir á næstu dögum.…
Hluti af Fróða flokkara er mættur á svæðið í þessum gám. Fleiri gámar eru væntanlegir á næstu dögum.

Uppsetning sjálfvirks flokkara í Berghellu hefst eftir tvær vikur, þann 23. mars næstkomandi. Fyrsti gámurinn með tæki innanborðs kom á svæðið í dag. Íslendingar, Danir og Tékkar munu vinna við uppsetningu á næstu vikum og gert er ráð fyrir því að nýi flokkarinn verði kominn í gagnið fyrir páska. 

Sjálfvirki flokkarinn okkar, eða Fróði flokkari, eins og við kjósum að kalla hann, er ein fullkomnasta flokkunarvél á Norðurlöndum sem notar ljósgeislagreiningu og ljósmyndaminni til þess að flokka úrgang með mun nákvæmari og fullkomnari hætti en áður hefur verið gert. Þetta færir í raun flokkun og endurvinnslu á annað stig á Íslandi. Við vonumst til þess að geta skilað til baka dýrmætum efnum í íslenska hringrásarhagkerfið.