Fallega bleikir gámar Terra hjá Orkunni við Smáralind
Fallega bleikir gámar Terra hjá Orkunni við Smáralind

Í samstarfi við Orkuna útbjó Terra sérstaka bleika söfnunargáma sem eru í samræmi við lit, stíl og stefnu fyrirtækisins. Þetta er í fyrsta sinn í sögu Terra að gámar eru sérstaklega málaðir bleikir og það er gaman að sjá hversu vel þeir koma út. Það er sannarlega gaman að breyta aðeins út af venjunni og prófa eitthvað nýtt; fallegir litir gera ekkert annað en að fegra umhverfið. Takk Orkan fyrir skemmtilega hvatningu og hugmynd! Gámar í þínum lit.