Orkan mun í júní og júlí bjóða uppá gáma fyrir garðaúrgang á fjórum stöðvum sínum á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Terra umhverfisþjónustu en með því vill Orkan einfalda fólki lífið.

Gámarnir eru staðsettir á Suðurströnd, Seltjarnarnesi, við Kleppsveg og í Hraunbæ í Reykjavík og á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði og eru aðgengilegir allan sólarhringinn. Í gámana má einungis fara garðaúrgangur svo sem lauf, gras, greinar, illgresi, blómaafskurður og mold. Engir plastpokar mega fara í gámana.