Hvernig endurnýtum við jólatré sem búið er að þjóna sýnum tilgangi sem stofustáss og gleðigjafi yfir hátíðirnar?

Hér eru tillögur sem fengnar voru af mbl.is hvernig við getum endurnýtt jólatréð

Notaðu grein­arn­ar í garðinn
Ef garðurinn er ekki á kafi í snjó er til­valið að klippa trjá­grein­arn­ar af við stofn­inn og nota til að hylja garðplönt­urn­ar okk­ar.

Nýttu nær­ing­una úr nál­un­um
Fjar­lægðu nál­arn­ar af grein­un­um og notaðu til að bæta jarðveg­inn í garðinum – garður­inn mun elska það.

Grein­ar sem eldiviður
Notaðu grein­arn­ar sem eldivið þar sem jóla­tré brenn­ur ekki síður vel en ann­ar viður og því til­valið að henda inn í ar­in­inn og ylja sér í leiðinni.

Gættu þess bara að grenið sé þurrt – en greni þorn­ar mjög fljótt og því til­val­inn eldiviður.

Gleðjum smá­fugl­ana
Það er nógu erfitt fyr­ir litlu fugl­ana að finna sér eitt­hvað að bíta í þessa dag­ana. Klipptu niður grein­ar og hengdu upp ut­an­dyra ásamt fræ­kúl­um. Bæði þú og fugl­arn­ir munuð njóta og hafa gam­an af.