Jóhannes Geir Guðnason, rekstrarstjóri Terra á Akranesi, og Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdarstjóri …
Jóhannes Geir Guðnason, rekstrarstjóri Terra á Akranesi, og Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdarstjóri KFÍA handsala samstarfið

ÍA og Terra sameina krafta sína til að bæta flokkun á Norðurálsmótinu

Íþróttabandalag Akraness (ÍA) og Terra hafa hafið formlegt samstarf um markvissari úrgangsflokkun á íþróttaviðburðum, með sérstaka áherslu á Norðurálsmótið sem fram fer á Akranesi þessa vikuna og komandi helgi. Markmiðið er að stuðla að hreinni og umhverfisvænni framkvæmd mótsins með bættri aðstöðu til flokkunar úrgangs.

Eins og gengur og gerist þar sem fjöldi fólks kemur saman fellur til mikið magn úrgangs. Til að mæta þessari áskorun hafa ÍA og Terra fjölgað flokkunartunnum víða á svæðinu – á íþróttasvæðum, tjaldsvæðum og skólum þar sem keppendur dvelja. Þar verður nú hægt að flokka úrgang í fjóra meginflokka: blandaðan úrgang, pappír, plast og skilagjaldsskyldar umbúðir.

„Við hvetjum alla gesti og þátttakendur á Norðurálsmótinu til að sýna ábyrgð og flokka rétt. Með réttri flokkun tryggjum við að úrgangurinn nýtist sem auðlind og fari í endurvinnslu. Þetta skiptir máli – fyrir náttúruna og framtíðina,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá ÍA og Terra.

Einnig verður flokkunarílát fyrir matarleifar staðsett í matsal Íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum, þar sem morgun-, hádegis- og kvöldverður er framreiddur. Þjálfarar, iðkendur og fararstjórar eru hvattir til að skila matarafgöngum í viðeigandi ílát.

Flokkunarleiðbeiningar:

  • Pappír: Kaffimál, fernur, rör úr Capri Sun, pappírhlutinn utan um skyr dollur og aðrar mjólkurvörur o.fl.
  • Plast: Capri Sun fernur, plastpokar, plastumbúðir af t.d. Corny og Prins pólo o.fl.
  • Blandaður úrgangur: Allt sem ekki á heima í öðrum flokkum.
  • Skilagjaldsumbúðir: Gler, plast og áldósir af drykkjum. Sett í sérstök ílát þar sem þau eru tekin til endurvinnslu með skilagjaldi.

Athugið: Ef vafi leikur á réttum flokki er betra að setja viðkomandi úrgang í blandaðan úrgang til að koma í veg fyrir að heilir úrgangsstraumar mengist.

Allur úrgangur sem fellur til á mótinu verður vigtaður að því loknu. Það er sameiginlegt markmið mótshaldara og Terra að minnka hlutfall blandaðs úrgangs frá fyrri árum og skapa þannig fordæmi fyrir aðra viðburði.

„Börn eru þegar vön að flokka úrgang í skólum og heima – nú höldum við því áfram á mótum. Þetta er mikilvægt skref í átt að sjálfbærari íþróttaviðburðum,“ segir Erna Häsler markaðsstjóri hjá Terra.

Takk fyrir að flokka og góða skemmtun á mótinu