Könnun um ánægju viðskiptavina Terra

Nú er í gangi könnun þar sem markmiðið er að bæta þjónustu Terra og nær hún til viðskiptavina allra rekstrareininga og útstöðva félagsins. Rannsóknarfyrirtækið Prósent sér alfarið um framkvæmd könnunarinnar en könnunin er send rafrænt á netföng (og sms í einstaka tilfellum) frá netfanginu rannsoknir@rannsoknir.prosent.is Könnunin er send á handahófskennt úrtak viðskiptavina. Hægt er að svara könnun í tölvu og/eða farsíma og það tekur um 4 mínútur að svara könnuninni.

Markmið könnunarinnar er að greina tækifæri til umbóta, sérstaklega með það í huga að bæta þjónustu við viðskiptavini. Það er okkur mikilvægt að fá sem besta svörun og þökkum við viðskiptavinum kærlega fyrir þátttökuna og fyrir að hjálpa okkur að bæta þjónustuna.🥰

Eftir að könnun lýkur mun Prósent vera okkur innan handar við að draga út einn heppinn þátttakanda sem hlýtur gjafabréf í bottomless brunch á Bastard fyrir tvo.