Terra umhverfisþjónusta er á meðal leiðandi íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði HR Monitor til að vera útnefnt Mannauðshugsandi fyrirtæki árið 2022. 

Til að vera meðal leiðandi íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði HR Monitor til að vera útnefnd Mannauðshugsandi fyrirtæki þarf að hafa á 12 mánaða tímabili keyrt mannauðsmælingar meðal allra starfsmanna fyrirtækisins í hverjum ársfjórðungi eða frá fjórum til tólf sinnum á líðandi ári. Upplýst starfsmenn reglulega um niðurstöður mannauðsmælinga og árangur fyrirtækisins. Ásamt því að veita stjórnendum yfirsýn yfir árangur sinna sviða, deilda og hópa. Með þessu móti er sýnt í verki að mannauður fyrirtækisins skiptir miklu máli.