- Þjónusta
- Vörur
- Vinnustaðurinn
- Um okkur
- Vottanir
Frábær árangur hefur náðst við flokkun matarleifa eftir að nýtt flokkunarkerfi var innleitt hér á Suðvesturhorninu með tilkomu nýrra laga varðandi úrgangsflokkun.
Til að sem bestur árangur náist er mikilvægt að flokka matarleifar vel og vandlega.
Sorpa hefur tekið við þessum matarleifum, úr þeim er framleitt metangas og molta í Gaju, gas- og jarðgerðarstöð Sorpu. Þess má geta að með þessum árangri hefur verið lyft grettistaki í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Hjá Gaju er gert ráð fyrir að tekið verði á móti 24.000 tonnum af matarleifum, sem kemur í veg fyrir losun á 20.000 tonnum af koltvísýringisígildi. Það jafngildi því að taka 10.000 fólksbíla sem ganga fyrir jarðefniseldsneyti af götunum. Það er ekki það eina sem ávinnst af þessari söfnun, heldur er hliðarávinningurinn af þessari vinnslu, heilmikil molta og metan.
Sparast losun á gróðurhúsaloftegundum sem nemur um 800 kílóum fyrir hvert tonn af matarleifum.
Þessi frábæri árangur ætti að vera hvatning fyrir fyrirtæki til að gera enn betur þegar kemur að því að flokka matarleifar. Með því að fyrirtæki þitt flokki matarleifar er það að sýna samfélagslega ábyrgð.
Við hjá Terra bjóðum upp á þá þjónustu að leigja þínu fyrirtæki ílát undir matarleifar til að hafa úti og svo seljum við ílát og bréfpoka sem nota má innanhús. Hægt er að vera með þetta í reglubundinni þjónustu. Við sjáum svo um að skila matarleifunum á réttan hátt til Gaju, sem er eini farvegurinn fyrir matarleifar á Suðvesturhorninu sem samræmist hringrásarlögunum.
Hér má finna þær vörur sem Terra hefur til sölu sem ættu að auðvelda þínu fyrirtæki að flokka matarleifar
Ekki hika við að hafa samband við okkur hjá Terra og við leiðbeinum þér til að þitt fyrirtæki nái farsælum árangri í flokkun úrgangs.
Móttökustöðin Berghellu 1 er opin alla virka daga: 8:00-17:00
Efnaeyðing er opin alla virka daga: 8:00-16:00
Vörulager er opin alla virka daga: 8:00-16:00
Móttökustöðin Hlíðarvöllum Akureyri er opin alla virka daga: 8:00-16:00
Móttökustöðin í Vestmannaeyjum er opin virka daga: 10:00-18:00 og helgar 11:00-16:00
Móttökustöðin Akranesi er opin mán, þri, mið og fös: 10:00-18:00, fim 10:00-20:00 og lau 9:00-15:00
Þjónustuver er opið alla virka daga: 9:00-15:00
Netspjallið er opið alla virka daga: 9:00-16:00