Nú geta fyrirtæki losað úrganginn hjá Terra í Berghellu

Terra hefur opnað nýja móttökustöð fyrir fyrirtæki að Berghellu 1 í Hafnarfirði og þar geta fyrirtæki nú komið sjálf með úrganginn sinn til flokkunar og losunar á einfaldan og þægilegan hátt.

Á stöðinni verður tekið á móti fjölbreyttum úrgangsflokkum. Þeir flokkar sem verður tekið á móti eru eftirfarandi:

  • Bylgjupappír
  • Pappír/Pappi
  • Plastumbúðir
  • Heyrúlluplast
  • Frauðplast
  • Hreint timbur
  • Litað timbur
  • Málmur
  • Hjólbarðar
  • Flísar – postulín – gler
  • Blandaður rekstrarúrgangur
  • Grófur úrgangur

Fyrirtæki keyra einfaldlega inn á svæðið, fara á vigtina við komu og aftur við brottför og greiða samkvæmt kílóum sem skilað er inn. Þjónustan er opin bæði fyrirtækjum í reikningsviðskiptum við Terra og þeim sem vilja greiða á staðnum.

Ef einhver vafi leikur á flokkuninni er starfsmaður á svæðinu tilbúinn að leiðbeina og hjálpa til þannig að úrgangurinn fari á réttan stað.

Með nýju móttökustöðinni er Terra að stíga enn eitt skrefið í að bæta þjónustu við fyrirtæki.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Berghellu!