Ákveðið hefur verið að sameina félagið Terra Efnaeyðing, kt: 691298-2729 við móðurfélagið Terra Umhverfisþjónustu, kt: 410283-0349.

Kennitala Terra Efnaeyðingar verður óvirk frá og með 15. desember næstkomandi.

Við óskum eftir því að frá og með föstudeginum 15. desember berist allir reikningar frá ykkur á Terra Umhverfisþjónustu í stað Terra Efnaeyðingar.

Eftir 15. desember munum við ekki geta móttekið reikninga á kennitölu Terra Efnaeyðingar.

Ekki er gert ráð fyrir neinum breytingum í samskiptum eða greiðslum til ykkar við þessa tilfærslu. Þess má einnig geta að sömu aðilar koma að bókun, greiðslu og samskiptum við birgja.