Við undirritun samningsins; Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups…
Við undirritun samningsins; Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups og Gróa Björg Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar hjá Terra

Terra endurnýjar samstarf við Hringiðu

Terra hefur undirritað nýjan samstarfssamning við KLAK – Icelandic Startups og endurnýjar þar með stuðning sinn við nýsköpunarhraðalinn Hringiðu.

Terra hefur verið meðal bakhjarla KLAK frá árinu 2022 og lagt til bæði fjármagn og sérfræðiþekkingu, meðal annars með þátttöku í stýrihópi Hringiðu. Með áframhaldandi samstarfi styður Terra við frumkvöðla sem vinna að lausnum sem draga úr sóun, efla hringrásarhagkerfið og stuðla að sjálfbærri þróun.

„Það er okkur mikil ánægja að halda áfram samstarfi við KLAK. Hringiða fellur vel að stefnu Terra um að styðja við nýsköpun og sjálfbærar lausnir. Það er mikilvægt að atvinnulífið styðji við nýsköpun og þróun lausna sem nýtast bæði fyrirtækjum og samfélaginu í heild“ segir Gróa Björg Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar hjá Terra.

Hringiða er sex vikna viðskiptahraðall sem sniðinn er að þörfum sprotafyrirtækja sem vinna að grænum lausnum og sjálfbærum viðskiptalíkönum. Markmið Hringiðu er að á Íslandi rísi öflug fyrirtæki sem vinna að grænum lausnum, skapi verðmæt og áhugaverð störf og skili árangri í umhverfis- og loftslagsmálum á Íslandi.