Sjötíu og níu veflausnir eru tilnefndar til Íslensku vefverðlaunanna í ár en aðeins sextán þeirra hreppa verðlaun. Verðlaunin fara fram í tuttugasta og fimmta sinn í Hörpu þann 26. mars næstkomandi.

Verðlaunin eru haldin á vegum Samtaka vefiðnaðarins (SVEF) sem eru fagsamtök þeirra er starfa í vefmálum á Íslandi. Alls bárust SVEF 220 innsendingar veflausna í ár sem keppa um titla á borð við fyrirtækjavef ársins, app ársins og söluvef ársins.

Þjónustuvefur Terra er tilnefndum í flokki Innri vefur ársins, í sama flokki eru eftirtaldir vefir:

👉🏽HMS: Byggingarleyfi á Íslandi

👉🏽Hoobla – markaðstorg með sjálfstætt starfandi sérfræðinga

👉🏽Nemendagrunnur

👉🏽Nýjar aðildarsíður Icelandair Saga Club

👉🏽Nýr þjónustuvefur Terra

Þökkum Norda fyrir frábært samstarf 💪🏽