Við hjá Terra umhverfisþjónstu höldum áfram að vinna markvisst í að gera okkur enn umhverfisvænni.

Í síðustu viku tókum við hjá Terra umhverfisþjónustu á móti þremur nýjum Scania P340 metan krókheysisbílum. Um er að ræða nýjustu kynslóð metanbíla sem eru enn umhverfisvænni og hagkvæmari en eldri gerðir. Þeir eru með 9 lítra vél sem skilar 340 hestöflum með tog allt frá 1350Nm upp í 20000 Nm, sem gerir þessi tæki gríðarlega öflug.

Þessi kaup koma heim og saman við stefnu Terra umhverfisþjónustu um að minnka kolefnisfótspor, ásamt því eru þessi bílar mun hljóðlátari sem dregur verulega úr hljóðmengun. Þessir bílar koma til með að sinna endurvinnslutöðvum Sorpu á höfuðborgarsvæðinu og leysa því af dísel knúna bifreiðar sem þar voru til staðar.