- Þjónusta
- Vörur
- Vinnustaðurinn
- Um okkur
- Vottanir
Síðuskóli hefur hlotið titilinn Umhverfisverðlaun Terra fyrir árið 2025 á landsbyggðinni fyrir framúrskarandi árangur í flokkun úrgangs og markvissa vinnu í þágu sjálfbærni.
Verðlaunin eru veitt í viðurkenningarskyni fyrir öflugt og samstillt starf nemenda og starfsfólks við að draga úr úrgangi, auka endurvinnslu og efla umhverfisvitund. Síðuskóli stendur í fremstu röð stofnanna þegar það kemur að flokkun. Skólinn hefur nær helmingað þann úrgang sem endar á urðunarstað á síðustu árum sem og að heildar magn úrgangs hefur lækkað ár frá ári. Skólinn flokkar í alls níu flokka sem eru talsvert fleiri en reglur Akureyrarbæjar gera ráð fyrir.
Verðlaunin eru hvatning til áframhaldandi góðra verka og staðfesting á því að markviss umhverfisfræðsla og virk þátttaka skilar raunverulegum árangri. Við vonum að aðrar stofnanir taki Síðuskóla sér sem fyrirmynd.
“Síðuskóli vinnur frábært starf með því að kenna komandi kynslóðum um mikilvægi þess að flokka úrgang og að ganga vel um jörðina okkar. Sú þekking er nauðsynleg í nútíma samfélagi og verður enn mikilvægari eftir því sem að árin líða.
Síðuskóli er góð fyrirmynd bæði nemenda sem og annara stofnanna bæjarfélagsins. “ segir Kristbjörn Viðar Baldursson, sölu- og þjónustustjóri Terra á norðurlandi.
Til hamingju Síðuskóli 👏🏽
Móttökustöðin Berghellu 1 er opin alla virka daga: 8:00-17:00
Efnaeyðing er opin alla virka daga: 8:00-16:00
Vörulager er opin alla virka daga: 8:00-16:00
Móttökustöðin Hlíðarvöllum Akureyri er opin alla virka daga: 8:00-16:00
Móttökustöðin í Vestmannaeyjum er opin virka daga: 10:00-18:00 og helgar 11:00-16:00
Móttökustöðin Akranesi er opin mán, þri, mið og fös: 10:00-18:00, fim 10:00-20:00 og lau 9:00-15:00
Þjónustuver er opið alla virka daga: 9:00-15:00
Netspjallið er opið alla virka daga: 9:00-16:00