IKEA hlaut umhverfisverðlaun Terra 2023 fyrir framúrskarandi, markvissan og eftirtektarverðan árangur og ábyrga stefnu í umhverfismálum. Þetta er í fjórða sinn sem Terra velur samstarfsaðila sem Umhverfisfyrirtæki Terra.

,,Við hjá Terra upplifum einstaklega mikinn meðbyr hjá starfsfólki IKEA þegar kemur að flokkun og sjáum við fram áframhaldandi frábært samstarf þegar kemur að því að hámarka þá vegferð að breyta úrgangi í auðlind," segir Valgerður Sigrúnar Vigfúsardóttir, forstöðumaður viðskiptadeildar Terra.

Í rökstuðningi tilnefningarinnar kom meðal annars fram að IKEA hefur lagt mikið af mörkum við að auka umhverfisvitund landsmanna. IKEA leggur mikla áherslu á flokkun úrgangs og að flokka hann vel. Fyrirtækið hefur verið með gáma fyrir jólatré eftir jólin og tekið á móti ónýtum jólaseríum, sem minnir fólk á að það er mikilvægt að koma úrgangi í réttan farveg. IKEA tekur auk þess á móti harðplasti sem er sent til endurvinnslu hjá frumkvöðla fyrirtækinu Plastplan og er það gert sýnilegt í versluninni til að minna þannig á að úrgangur er auðlind. IKEA hefur unnið með Terra frá upphafi framkvæmda við nýtt vöruhús í að finna bestu lausnina varðandi úrgangsmál og flokkun.

Terra vill hvetja fólk og fyrirtæki til þess að flokka og endurvinna betur. Úrgangur er ekki bara úrgangur heldur er um verðmæti að ræða sem er mikilvægt að fara vel með og ná honum aftur inn í hringrásarhagkerfið," segir Valgeir og bætir við að Umhverfisverðlaunin séu hvatning til allra að gera betur.

,Hlutverk Terra er að vinna með fyrirtækjum, opinberum aðilum og einstaklingum, sem þjónustuaðili og ráðgjafi. Við komum svo að söfnun úrgangs og komum honum í réttan farveg til endurnýtingar og endurvinnslu.

 

TIL HAMINGJU IKEA 💛💙💛💙