Á myndinni má sjá fulltrúa Bauhaus taka á móti Umhverfisverðlaunum Terra.
Elísabet, viðskiptastjóri…
Á myndinni má sjá fulltrúa Bauhaus taka á móti Umhverfisverðlaunum Terra.
Elísabet, viðskiptastjóri Terra, Jóhann Bjarni Pétursson, rekstrarstjóri Bauhaus, Ásgeir Bachman, framkvæmdastjóri Bauhaus, Karen Anna Sævarsdóttir, mannauðsfulltrúi Bauhaus og Valgerður, forstöðumaður viðskiptadeildar Terra.

Í ár er sjötta sinn sem Terra veitir samstarfsaðilum sínum viðurkenninguna “Umhverfisfyrirtæki ársins” Þessi verðlaun eru afhent þeim viðskiptavinum sem hafa sýnt framúrskarandi árangur í flokkun og endurvinnslu og jafnvel farið nýjar leiðir í ábyrgð þegar kemur að úrgangsmálum. Í fyrsta sinn árið 2024 voru valin tvö fyrirtæki til að hljóta þessi eftirsóttu verðlaun. Eitt á höfuðborgarsvæðinu og eitt á landsbyggðinni.

Fyrir árangur á árinu 2025 á höfuðborgarsvæðinu var það BAUHAUS sem hlaut umhverfisverðlaunin fyrir markvissan og eftirtektarverðan árangur í úrgangsstjórnun í sínum rekstri.

Með skýra og metnaðarfulla stefnu í umhverfismálum, sem starfsmenn fyrirtækisins framfylgja af ábyrgð og fagmennsku, hefur BAUHAUS náð framúrskarandi árangri í flokkun úrgangs og endurvinnslu. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að koma sem stærstum hluta úrgangs aftur inn í hringrásarhagkerfið og lágmarka þann hluta sem ratar ekki þangað

Í rökstuðningi dómnefndar kemur meðal annars fram að einungis um 5% af þeim úrgangi sem til fellur hjá BAUHAUS sé blandaður úrgangur. Úrgangi fyrirtækisins er skipt niður í allt að 45 flokka, sem endurspeglar markvissa og faglega nálgun í úrgangsstjórnun.

“Samhliða metnaðarfullu flokkunarkerfi hefur BAUHAUS einnig lagt áherslu á að veita viðskiptavinum sínum tækifæri til að skilja umbúðir eftir í versluninni og einnig skilja eftir í versluninni ákveðnum úrgangsflokkum, svo sem ljósaperum, raftækjum, úðabrúsum og rafhlöðum, og þannig stuðla að aukinni umhverfisábyrgð í samfélaginu. “ segir Valgerður Sigrúnar Vigfúsardóttir, forstöðumaður viðskiptadeildar Terra.

„Það er mjög ánægjulegt að fylgjast með mörgum okkar viðskiptavinum sem sína mikla ábyrgð í úrgangsmálum og jafnvel, eins og BAUHAUS útvíkkar ábyrgð sína með því að veita viðskiptavinum tækifæri til að nýta ferðina til þeirra og skilja eftir ákveðna flokka sem ekki er safnað upp við húsvegg hjá fólki né á grenndarstöðvum”. Bætir Valgerður við.

 

Til hamingju Bauhaus 👏🏽