Blandaður úrgangur
  • Salernisúrgangur
  • Úrgangur frá gæludýrahaldi
  • Bleyjur
  • Gúmmíhanskar
  • Umbúðir sem ekki er hægt að hreinsa
  • Tyggjó

Í almennu tunnuna sem getur verið grá eða svört fer sá úrgangur sem ekki er endurvinnanlegur.

Matarleifar
  • Ávextir og ávaxtahýði
  • Grænmeti og grænmetishýði
  • Egg og eggjaskurn
  • Kjöt og fiskafgangar + bein
  • Mjöl, grjón, pizza og pasta
  • Brauðmeti, kex og kökur
  • Kaffikorgur og kaffipokar
  • Teblöð og tepokar
  • Mjólkurvörur og grautar
  • Pottaplöntur og blóm
  • Kámaðar pappírsþurrkur
  • Tannstönglar, íspinnaprik og sushiprjónar

Í lífræna hólfið í tunnunni fara allir matarafgangar og annar lífrænn úrgangur sem til fellur 

Endurvinnslutunna
    • Dagblöð
    • Tímarit
    • Umslög
    • Sléttur pappi
    • Bylgjupappi
    • Pizzakassar
    • Morgunkornskassar
    • Niðursuðurdósir
    • Lok af glerkrukkum
    • Plastbrúsar
    • Plastfilma
    • Plastpokar
    • Frauðplast
    • Gjafapappír
    • Plastöskjur
    • Sprittkertabikarar

    Skola þarf efnið og losa tappa af brúsum. Fernur, skolaðar og samanbrotnar.

    Ekki gler vegna slysahættu við flokkun!

    Skoða leiðbeiningar á PDF sniði.

Í grænu endurvinnslutunnuna má setja allar plastumbúðir, málma, pappír og pappa. 

Landbúnaðarplast

Leiðbeiningabæklingur um flokkun á landbúnaðarplasti eða heyrúlluplasti til endurvinnslu er hægt að nálgast hér.

Landbúnaðarplast sem er notað utan um heyrúllur er úrvalsplast sem er tilvalið í endurvinnslu. Ef plastið er ekki rétt flokkað eða óhreint er ekki hægt að endurvinna það.

Gámasvæði við Sandskeið
Sandskeið, Dalvik

Opnunartímar

Opnunartími: 

• Mánudaga     kl. 15:00 - 18:00

• Miðvikudaga kl. 15:00 - 18:00

• Föstudaga     kl. 15:00 - 18:00

• Laugardaga   kl. 11:00 - 14:00

(Opnunartími er birtur með fyrirvara um breytingar hjá sveitarfélaginu)

Frá og með 1. janúar 2019 þurfa þeir sem koma með sorp á móttökustöðina við Sandskeið á Dalvík að framvísa klippikortum!

(Opnunartími er birtur með fyrirvara um breytingar hjá sveitarfélaginu.)
Gjaldfrjálst

 

 

Flokkun sorps á Endurvinnslustöð
Sorp til endurvinnslu og förgunar er flokkað á eftirfarandi hátt á Endurvinnslustöð;

Timbur
Málmar og brotajárn, allt frá niðursuðudósum upp í bifreiðar
Garðaúrgangur
Pappír, pappi, dagblöð, tímarit og auglýsingapésar
Plast
Fernur
Kælitæki
Hjólbarðar
Raftæki
Spilliefni ( rafhlöður, rafgeymar, olíuafgangar, málningarafgangar og fleira )
Óflokkað sorp
Fatnaður (gámur merktur Rauða krossinum)
Litlu gráu gámarnir eru fyrir óflokkað heimilisrusl.
Endurvinnsslustöð tekur við afskráðum bifreiðum og starfsmaður þess gefur út skilavottorð. Nú er greitt skilagjald kr. 15.000 fyrir bifreiðar skráðar eftir 1980.

Móttaka skilagjaldsskildra drykkjarumbúða (dósamóttakan) er hjá Landflutningum Samskip (FMN), Ránarbraut 2b, á miðvikudögum milli 14:00 og 17:00.

 

Bannað er að skilja sorp eftir fyrir utan girðingu Endurvinnslustöðvarinnar. 

Vakin er athygli á því að svæðið er ekki leikvöllur barna og unglinga. Þar geta leynst hættulegar gildrur og ekki síður hættuleg efni. Foreldrar eru því beðnir um að brýna það fyrir börnum sínum.

Frá og með 1. janúar 2019 þurfa þeir sem koma með sorp á móttökustöðina við Sandskeið á Dalvík að framvísa klippikortum.

Einungis er klippt af klippikortum af förmum sem eru gjaldskyldir.
Mikilvægt er að allir sem koma með farma á gámavöll séu búnir að forflokka og rúmmálsminnka farminn eins og kostur er.